Enginn gervisnjór á Jóla Gó 27. desember 2011 08:00 Jóla Gó varð til sem grínádeila á rjómatertutónleika um jólin. „
Ég lofa að það verður enginn gervisnjór,“ segir Guðmundur Óskar Guðmundsson, bassaleikari og einn skipuleggjenda tónleikanna Jólagestir Gó, eða Jóla Gó, sem haldnir verða í kvöld og annað kvöld á Café Rósenberg. Einvalalið tónlistarfólks kemur fram á tónleikunum í ár, sem haldnir eru undir þessu nafni annað árið í röð. Þau Sigríður Thorlacius, Sigurður Guðmundsson, Högni Egilsson, Aron Steinn Ásbjarnarson, Sigurlaug Gísladóttir, Dísa Jakobs, Sigtryggur Baldursson og Helgi Björns munu þenja raddböndin og undirleikur verður meðal annars í höndum Hjartar Ingva Jóhannssonar píanóleikara, Ara Braga Kárasonar trompetleikara og Jóels Pálssonar á saxófón. Guðmundur segir fjögur ár síðan hann hóaði vinum sínum saman til að spila á jólatónleikum á Rósenberg, en í fyrra kviknaði hugmyndin að nafninu. „Nafnið varð til sem einhvers konar grínádeila á alla rjómatertutónleikana sem boðið er upp á aðventunni eins og Frostrósir og Jólagesti Björgvins. En annars eru þetta allt saman góðir vinir mínir og kunningjar, okkur finnst gaman að gera þetta saman og hugmyndin er líka að nota tækifærið þegar fólk kemur heim í jólafrí og þjappa hópnum aðeins saman.“ Guðmundur lofar góðri stemmningu, þótt enginn verði gervisnjórinn, og segir prógrammið blöndu af jólalögum og öðrum lögum tónlistarfólksins. Aðspurður hvort Helgi Björns muni taka sitt ástsæla og umdeilda jólalag, Ef ég nenni, segir Guðmundur það eins gott. „Það kemur náttúrulega ekkert annað til greina. Við misstum kannski 50 mögulega tónleikagesti við þessa staðhæfingu en fengum aðra 500 til að mæta.“ Tónleikarnir hefjast klukkan 21 á Café Rósenberg bæði kvöldin, miðaverð er 2000 krónur og miðasala fer fram við innganginn. -bb
Mest lesið „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Lífið Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið Niðurgangur, æla og nóg af pungspörkum Gagnrýni Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið Töff skilnaðarhringur eða fokk-jú fortíð? Áskorun Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Sjá meira