Ævintýri að spila með Allen 2. apríl 2011 07:00 spila saman Samúel Jón Samúelsson og Tony Allen í Noregi í fyrra. Þeir spila saman í fyrsta sinn í Tjarnarbíói í sumar.
hlakkar til Samúel hlakkar mikið til að spila með átrúnaðargoði sínu. Samúel Jón Samúelsson er mjög spenntur fyrir tónleikum Stórsveitar sinnar og nígeríska trommuleikarans Tony Allen. Þeir hittust fyrst á klúbbi í London og hafa verið í sambandi síðan. Stórsveit Samúels Jóns Samúelssonar spilar í Tjarnarbíói 1. júní á Listahátíð í Reykjavík með einu af átrúnaðargoðum hans, nígeríska trommuleikarum Tony Allen. Fréttablaðið greindi á síðasta ári frá fundi þeirra Samúels og Allen á tónlistarhátíðinni Nattjazz í Noregi. Þá reyndi Samúel að fá hann til Íslands og tók Allen vel í það. „Ég hitti hann fyrst fyrir nokkrum árum baksviðs þegar hann var að spila á sama klúbbi og Jagúar í London. Ég spjallaði við hann og setti mig svo í samband við umboðsmann hans. Ég reyndi að fá hann til Íslands 2008 en það gekk ekki. Svo hitti ég hann aftur í vor og hafði í kjölfarið samband við umboðsmanninn. Núna er búið að lenda þessu,“ segir Samúel og er að sjálfsögðu sáttur við niðurstöðuna. „Hann kemur hérna og æfir aðeins með okkur og svo höldum við þessa tónleika. Þetta verður geðveikt ævintýri.“ Tony Allen er þekktur fyrir að hafa spilað með landa sínum Fela Kuti í rúman áratug og er einn af mönnunum á bak við „afrobeat“-tónlistarstefnuna. Undanfarin ár hefur hann spilað með ýmsum flytjendum, þar á meðal Damon Albarn, Flea, Sebastien Tellier og frönsku hljómsveitinni Air. Spurður út í frekara samstarf við Allen segir Samúel: „Við sjáum bara til. Ég stefni á að vera með nýja músík á prógramminu og ég ætla líka að taka upp tónleikana. Við sjáum til hvað kemur út úr þessu.“freyr@frettabladid.isGóður liðsstyrkur Stórsveit Samúels J. Samúelssonar á Íslensku tónlistarverðlaununum fyrir skömmu.fréttablaðið/vilhelm
Mest lesið Von á tíu nýjum lögum tíu árum eftir andlátið Tónlist Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Lífið Bríet sviptir hulunni af kærastanum Lífið Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið Brjálaðar boltamömmur berjast Bíó og sjónvarp Stytta af Charlie Kirk á Times Square Lífið „Undirstaða Hörpu mun hristast undir hreinum og ómenguðum krafti“ Tónlist Fyrsta lesbían til að prýða Playboy Lífið „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Lífið Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Lífið Fleiri fréttir Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Sjá meira