Bíóferð fjölskyldunnar kostar um 7.000 krónur 5. maí 2011 20:00
Bíóferð fyrir fjögurra manna fjölskyldu, tvo fullorðna og tvö börn á aldrinum 9-12 ára, getur auðveldlega kostað nálægt sjö þúsund krónum. Þessa upphæð þarf fjölskyldan að greiða ef keypt er lítil kók og lítill poki af poppkorni handa hverjum og einum ásamt bíómiðum þegar engin tilboð eru. Hjá Sambíóunum er almennt miðaverð fyrir fullorðna 1.200 krónur og miðaverð fyrir 9-12 ára 1.100 krónur. Verð bíómiðanna fyrir fjölskylduna er þess vegna 4.600 krónur. Lítil kók kostar 285 krónur og lítill poki af poppkorni kostar 270 krónur. Samtals kostar meðlætið 2.220 krónur fyrir fjóra. Alls þarf fjölskyldan að greiða 6.820 krónur fyrir skemmtunina án tilboða. Alfreð Árnason, framkvæmdastjóri Sambíóanna, segir miðaverð hafa hækkað um 50 krónur 2. maí síðastliðinn. „Árið 2002 kostaði bíómiðinn 800 krónur en ef við reiknum verðhækkunina miðað við neysluverðsvísitölu 2011 ætti bíómiðinn að kosta 1.313 krónur en hann kostar aðeins 1.200 krónur." Almennt miðaverð fyrir börn yngri en 9 ára er 700 krónur og fyrir eldri borgara og öryrkja 900 krónur. Miði í lúxussal kostar 2.400 krónur. Þrívíddarmiðaverð er hærra fyrir alla aldurshópa eða sem nemur um 16 prósentum, að sögn Árna. „Ástæðan fyrir því að miðaverð á myndir sýndar í þrívídd er hærra en á myndir í tvívídd er dýrari tæknibúnaður sem notaður er við sýningarnar auk þess sem myndirnar eru dýrari í framleiðslu. Þær njóta hins vegar mikilla vinsælda. Í fyrra voru 22 prósent af sýndum myndum í þrívídd en í ár verður fjöldinn að öllum líkindum 30 prósent." Til þess að draga úr kostnaði við bíóferð er um að gera að nýta sér tilboðin sem í boði eru. Á þriðjudögum kostar miðinn hjá Sambíóum 750 krónur fyrir fullorðna. Um helgar er boðið upp á Sparbíó fyrir fjölskylduna." Til þess að létta undir með fólki bjóðum við auk þessa mörg önnur tilboð sem lesa má um á vefsíðunni okkar." Jón Eiríkur Jóhannsson, rekstrarstjóri Háskólabíós og Smárabíós, segir almennt miðaverð, sem er 1.200 krónur, lækka um 100 krónur sé miðinn keyptur á netinu. Þessi kvikmyndahús bjóða jafnframt upp á tilboð á þriðjudögum og um helgar og það gerir einnig Laugarásbíó. Almennt miðaverð í Laugarásbíói er 1.100 krónur. Sé miðinn keyptur á netinu er gefinn 50 króna afsláttur. ibs@frettabladid.is
Mest lesið „Það verða engir konungar“ Erlent Lögreglustjóri braut meðalhófsreglu Innlent Kominn úr tunnunni og upp í lögreglubíl Innlent Símasamband verra eftir að slökkt var á eldri sendum Innlent Segir óheimilt hafi verið að sigla af stað með mótmælandann um borð Innlent „Sjaldan verið jafn góður tími og núna fyrir kaupendur“ Innlent Hópur fólks hafi setið um matinn í frískápnum Innlent „Þetta er eitthvert langsóttasta bull sem ég hef heyrt“ Innlent Lögregla varar við svikahrappi í Árbæ Innlent Vilja veita nítján manns ríkisborgararétt Innlent Fleiri fréttir Lögreglustjóri braut meðalhófsreglu Símasamband verra eftir að slökkt var á eldri sendum Bjartsýni um að ljúka þingstörfum á morgun Kominn úr tunnunni og upp í lögreglubíl Segir óheimilt hafi verið að sigla af stað með mótmælandann um borð „Sjaldan verið jafn góður tími og núna fyrir kaupendur“ Hólmsteinn skriðinn úr tunnunni Í haldi lögreglu eftir fjölskylduerjur í Garðabæ Vilja veita nítján manns ríkisborgararétt Lögregla varar við svikahrappi í Árbæ Í beinni frá Hvalfirði: Mótmælandi enn í hvalbát Handtekin á leið úr landi með ríflega hundrað fuglsegg og lifandi unga Sigldu af stað með mótmælandann um borð Vilja segja „já til að sjá“ „Þetta er eitthvert langsóttasta bull sem ég hef heyrt“ Annmarkar á fleiri en einu stigi málsins Landsréttur sýknar Sindra og Ísidór af hryðjuverkaákæru „Ég veit ekki hvað annað ég get gert til að hjálpa hvölunum“ Systir Ming Ting: Catherine „ekki sjálfstæð“ „Þurfum að passa okkur að vera ekki einföld“ Ekki hafi verið ásetningur um að bana sambýliskonunni Klórför eins og þegar fólk „reynir að losa sig úr kyrkingunni“ Hyggjast sekta leigusala sem skrá ekki samninga Jón Björn ráðinn sveitarstjóri Þingmenn beðnir um að vera á tánum og tímamót í golfsögu Íslendinga nálgast Mótmælendur ekki kærðir eftir truflun á þingfundi Jón Magnús frá Ölmu og aftur á spítalann Hópur fólks hafi setið um matinn í frískápnum Bein útsending: Samtal um þjóðaröryggi – Lýðræði á tímum upplýsingaóreiðu Myndaveisla: Norðlendingar fögnuðu á 17. júní Sjá meira