Innlent

Annie Mist heimsmeistari í Crossfit - 29 milljónir í verðlaun

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Annie Mist Þórisdóttir varð í kvöld heimsmeistari í Crossfit í kvennaflokki. Annie Mist hlaut 842 stig samanlagt í greinunum tíu og varð 43 stigum á undan Kristan Clever frá Bandaríkjunum sem lenti í öðru sæti.

Heimsleikarnir fóru fram í Los Angeles í Bandaríkjunum og var hægt að fylgjast með beinni útsendingu á heimasíðu mótsins. Annie Mist sigraði í þremur greinum af tíu og varð þriðja í fjórum greinanna.

Frábær árangur hjá Annie sem hefur undanfarin ár sýnt að hún er meðal þeirra fremstu í heiminum í íþróttinni. Nú er staðfest að hún er fremst.

Annie hlýtur 250 þúsund dollara í verðlaunafé eða sem nemur tæpum 29 milljónum íslenskra króna. Auk þess hlýtur Annie titilinn „The fittest woman on earth."

Lokaniðurstöðuna í kvennaflokki má sjá á heimasíðu mótsins með því að smella hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×