Kólnandi veður á landinu næstu daga 15. október 2011 09:00
Veður fer kólnandi á landinu á morgun með norðanátt á Vesturlandi og snjókomu. Úrkoman færir sig svo yfir Norður- og Austurlandið í næstu viku. Suðurland sleppur mestmegnis við snjó, en norðanáttin verður köld og nokkuð hvöss. Hressilegt haglél gerði á Selfossi í gærmorgun svo glumdi hátt í húsþökum og bílum. Það stóð þó aðeins yfir í um það bil þrjár mínútur, en höglin voru allt að fimm millimetrar í þvermál. Þorsteinn V. Jónsson, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir að eldingar hafi mælst vestur af landinu, en þær komi oft þegar óstöðugleiki er í loftinu, líkt og haglél. „Þegar mikil ólga er í skýjum, með miklu upp- og niðurstreymi, getur myndast rafmagn og spenna sem veldur eldingum," segir hann. Spurður hvort veturinn komi á morgun, svarar hann að á Veðurstofunni séu október og nóvember enn skilgreindir sem haustmánuðir, og er því ekki tilbúinn að taka undir það, þótt hann fari vissulega kólnandi. „En við sleppum hérna sunnanlands við snjókomuna. Það verður norðanþræsingur, nokkuð köld og björt norðanátt," segir hann og bætir við að svo sé spáin út næstu viku. Á miðvikudag verði líklega um frostmark um landið allt. - sv
Mest lesið Endalaust þvaður gæti fælt kjósendur frá Innlent Innbroti í apótek lauk með glæfraakstri yfir göngubrú Innlent Ekið á upplýsingafulltrúa sem var að fara að missa vinnuna Innlent Synda milli Eyja og Íslands til minningar um Bríeti Irmu Innlent Breyttu verklagi eftir ábendingar Hvals: „Bagalegt að íslenskum sjómönnum sé stefnt í hættu“ Innlent Guðlaugur segir Þorgerði á hröðum flótta Innlent Hundur hefur fundist dauður við Langjökul Innlent „Alltaf litið á þetta sem eitthvað sem bráðamóttakan gerir“ Innlent Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut Innlent Ellefu ára drengur lést eftir að hafa vaknað með leðurblöku á andlitinu Erlent Fleiri fréttir Líkamsárás og ölvunarakstur Endalaust þvaður gæti fælt kjósendur frá Synda milli Eyja og Íslands til minningar um Bríeti Irmu Breyttu verklagi eftir ábendingar Hvals: „Bagalegt að íslenskum sjómönnum sé stefnt í hættu“ Innbroti í apótek lauk með glæfraakstri yfir göngubrú Grunur um uppljóstrun, hætta á aðgerðaleysi og eftirför Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut Sakar MAST um að ljóstra upp um staðsetningu skipa Hvals „Sé ekki annað en að Samkeppniseftirlitið sé að sinna sínu hlutverki“ Vesturbæjarlaug opnar dyrnar á ný „Alltaf litið á þetta sem eitthvað sem bráðamóttakan gerir“ Guðlaugur segir Þorgerði á hröðum flótta Þrjú tilvik til rannsóknar: Bandero á ferðinni á hvalamiðum Þorgerður Katrín mun ekki mæta Gulla Þór Quang Le fer ekki langt Hundur hefur fundist dauður við Langjökul Íslendingar berjast um eitt af efstu átta sætunum á EM Bandero segist elta hvalbátana og Pollamótið hafið fyrir norðan Ekið á upplýsingafulltrúa sem var að fara að missa vinnuna Engum verkefnum útvistað og ekki greitt fyrir ráðgjöf Maður sem passaði við lýsinguna var handtekinn Alexandra ráðin bæjarstjóri Suðurnesjabæjar Hafna tillögum um þéttingu í Grafarvogi Bæjarstjóri í þriðja skipti Saka meirihlutann um að slá ryki í augu borgarbúa: Krefjast svara um tilhögun upplýsingagjafar Akreinum fækki þó bílum fjölgi: Flöskuhálsinn ekki endilega fjöldi akreina Hús bleikjuvinnslu varð að Syndabæli Kominn á sjúkrahús eftir krefjandi ferð Blóðug föt á vettvangi þar sem lögreglan var með viðbragð Sambandið stormasamt og lítið útlit fyrir að gjáin sé að minnka Sjá meira
Breyttu verklagi eftir ábendingar Hvals: „Bagalegt að íslenskum sjómönnum sé stefnt í hættu“ Innlent
Breyttu verklagi eftir ábendingar Hvals: „Bagalegt að íslenskum sjómönnum sé stefnt í hættu“ Innlent