722 einbreiðar brýr á þjóðvegum landsins 27. júní 2011 06:30 Verið er að reisa nýja tvöfalda brú yfir Haffjarðará á Snæfellsnesi og verður hún tekin í notkun í haust. fréttablaðið/pjetur
Meirihluta brúa í þjóðvegakerfi landsins er enn einbreiður, en unnið er að fækkun þeirra samkvæmt umferðar-öryggisáætlun. Alls eru 1.206 brýr í þjóðvegakerfi landsins og af þeim eru 722 einbreiðar. Ef aðeins er litið til stofn- og tengivega eru 423 einbreiðar brýr á landinu. Einar Magnús Magnússon, hjá Umferðarstofu, segir að þar á bæ hafi menn miklar áhyggjur af einbreiðum brúm. Í kynningarmyndbandi ætluðu erlendum ferðarmönnum er þeim sérstaklega bent á hætturnar samfara akstri um einbreiðar brýr. „Það er ekkert launungarmál að menn hafa haft áhyggjur af þessu, enda eru einbreiðar brýr miklir slysavaldar,“ segir Einar. Hann segir svartbletti á vegakerfi landsins, þar sem flest slys verða, oftar en ekki í námunda við einbreiðar brýr. Rögnvaldur Gunnarsson, forstöðumaður hjá Vegagerðinni, segir unnið að því að fækka einbreiðum brúm. Sérstaklega sé horft á brýr þar sem umferð er meiri og einnig minni brýr. Kostnaður aukist síðan eftir því sem brýrnar stækka. „Þegar herðir að í þjóðarbúskapnum dregur úr peningunum,“ segir Rögnvaldur. Unnið er að tvöföldun brúarinnar yfir Haffjarðará á Snæfellsnesi og lýkur því verki í haust. Þá fékk Vegagerðin viðbótarfjárveitingu til að tvöfalda fjórar brýr á Vestfjörðum og hefjast framkvæmdir við þær í haust. Rögnvaldur segir slysahættuna mikla við einbreiðar brýr og einnig séu þær margar hverjar orðnar mjög gamlar og því nauðsynlegt að endurnýja þær. Í umferðaröryggisáætlun til ársins 2016 er stefnt að öruggari vegum og eyðingu svartbletta. Þeir eru skilgreindir sem staðir í vegakerfinu þar sem fjöldi slysa af líkum toga verður, til dæmis í kröppum beygjum, við vegamót eða einbreiðar brýr. kolbeinn@frettabladid.is
Mest lesið „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Innlent Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Innlent Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Innlent Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Innlent Þurfti að lenda flugvél eftir að kennarinn stökk út og hrapaði til bana Erlent Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Innlent Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Innlent Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Innlent Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Innlent Fleiri fréttir Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Skemmdarvargarnir enn ófundnir Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Ætla aftur að mála regnbogafánann Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Rússneska herskipið aftur innan lögsögunnar Jón Ingvar vildi níutíu milljónir en fær ekki krónu Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Ríkisútvarpið braut ekki gegn siðareglum Trump, hóteldeilur og VestFest í kvöldfréttum Evrópusambandið sé verkfæri til að ná stöðugleika Stjórnandi drónans taldi sér ógnað og byssumaðurinn dæmdur Sjá meira