Alls engin yfirlýsing - Svör ráðherra oftúlkuð Erla Hlynsdóttir skrifar 27. júní 2011 09:12 Flugmenn hjá Icelandair hafa oftúlkað orð ráðherra þegar hún svaraði spurningu fréttamanns Stöðvar 2 Mynd Valli
Iðnaðarráðherra sendi aldrei frá sér yfirlýsingu þar sem sagði að til greina kæmi að lög yrðu sett á verkfall flugmanna. „Það mátti skilja það þannig af fréttum en það er nú ekki rétt, ég gerði það ekki," sagði Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra, Í bítinu á Bylgjunni í morgun. Framkvæmdastjóri Félags íslenskra atvinnuflugmanna talaði um það í fjölmiðlum um helgina að „yfirlýsing" ráðherra hefði snert flugmenn illa og að hún hefði komið á viðkvæmum tíma. Fréttir af þessu voru fluttar í ýmsum fjölmiðlum þar sem fjallað var um kjaradeilu flugmanna hjá Icelandair. Hið rétta er hins vegar að fréttamaður Stöðvar 2 spurði ráðherra á föstudag hvort hægt væri að útiloka að lög yrðu sett á verkfallið og sagði ráðherra aldrei hægt að útiloka slíkt. „Það er náttúrulega aldrei hægt að útiloka slíka möguleika þegar kjaradeilur eiga sér stað. Ég held að það geti ekki nokkur maður gert það," sagði Katrín Í bítinu en tók fram að mikið þyrfti að ganga á áður en gripið væri til slíkra aðgerða. „Það er nú ekki komið að því á þessari stundu og töluvert í land með það þannig að þessi orð mín voru nú eitthvað oftúlkuð," sagði hún. Meðal annars sagði Kjartan Jónsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra atvinnuflugmanna, í viðtali við RÚV á sunnudag: „Það er skelfilega ófaglegt af iðnaðarráðherra að hóta lögbanni." Í bítinu var Katrín spurð hvort túlkun á svari hennar hefði verið tekin of langt. „Já, það má segja það. En það kannski hefur hentað einhverjum. Það er bara eins og það er," sagði hún. Hægt er að hlusta á viðtalið við Katrínu Í bítinu í morgun með því að smella á tengilinn hér að ofan.Með því að smella hér má horfa á viðtal Stöðvar 2 við ráðherra á föstudag þar sem hún segist aðspurð ekki útiloka að setja lög á verkfallið. Ríkissáttasemjari hefur boðað til sáttafundar með flugmönnum Icelandair og samningamönnum félagsins, klukkan hálf tvö í dag.
Mest lesið „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Innlent Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Innlent Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Innlent Þurfti að lenda flugvél eftir að kennarinn stökk út og hrapaði til bana Erlent Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Innlent Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Innlent Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Innlent Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Innlent Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Innlent Fleiri fréttir Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Skemmdarvargarnir enn ófundnir Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Ætla aftur að mála regnbogafánann Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Rússneska herskipið aftur innan lögsögunnar Jón Ingvar vildi níutíu milljónir en fær ekki krónu Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Ríkisútvarpið braut ekki gegn siðareglum Trump, hóteldeilur og VestFest í kvöldfréttum Sjá meira