Norrænir ráðherrar ræddu mænuskaða í Finnlandi 27. júní 2011 11:31 Mynd úr safni
Guðbjartur Hannesson, velferðarráðherra, sagði á fundi velferðaráðherra Norðurlandanna í Finnlandi síðustu viku að umferðarslys væru ein höfuðorsök meiðsla, sér í lagi hjá ungu fólki. Ráðherrarnir voru sammála um nauðsyn þess að velferðarkerfi þjóðanna séu sterk, þau þurfi að taka mið af lýðfræðilegri þróun og bera breytingar sem fylgja hækkandi hlutfalli aldraðra. Umfjöllun um virka og heilbrigða öldrun bar hátt á fundi ráðherranna. Þeir lögðu allir áherslu á að Norðurlandaþjóðirnar væru í fremstu röð varðandi öldrunarþjónustu og heilbrigði en töldu jafnframt að samstarf þjóðanna í þessum efnum væri gefandi og mikils virði. Guðbjartur sagði í ræðu sinni að í tengslum við alheimsátak Sameinuðu Þjóðanna gegn umferðarslysum hefði Íslands, eins og önnur lönd, skuldbundið sig til að gera ráðstafanir sem fækka umferðarslysum og bjarga með því mannslífum og fækka fötlunum. Ríkisstjórn Íslands hefði gert ýmsar ráðstafanir í því sambandi og væri ein þeirra að styðja við störf Mænuskaðastofnunar Íslands en tæpur helmingur þess fólks sem hlýtur skaða á mænu og lamast vegna slysa hlýtur skaðann í umferðarslysum. Hann sagði að Ísland hefði lagt fram tillögu hjá Norrænu ráðherranefndinni þess efnis að ráðið kæmi á fót starfshópi lækna og vísindamanna sem hefði það hlutverk að skoða útgefið efni með tengist rannsóknum á mænunni. Auður Guðjónsdóttir, stjórnarformaður Mænuskaðastofnunar Íslands, segir að með ræðu sinni sé ráðherran meðal annars að framfylgja samþykkt um mænuskaða sem forsætisráðherra lagði fyrir ríkisstjórn í mars síðastliðnum en húnf jallar um að Ísland taki að sér að vekja athygli á mænuskaða á alþjóðavísu ásamt öðru. Hún segir að mjög erfiðlega gangi að þróa meðferð við mænuskaða í átt að lækningu og bindur miklar vonir við að tillaga Íslandsdeildar Norðurlandaráðs til Norrænu ráðherranefndarinnar verði samþykkt á þingi Norðurlandaráðs í nóvember næstkomandi. Verði starfshópnum komið á fót muni verða lagður grunnur að skipulagðri leit að lækningu á mænuskaða með stuðningi Norðurlandaráðs og muni það ekki einungis gagnast mænuskaða heldur öllu miðtaugakerfinu. Auður segir að mikil vannýtt vísindaþekking sé til á sviðinu og segir að það ætti að vera norrænt markmið að Norðurlöndin beittu sér sameiginlega fyrir því að þekkingin verði sameinuð og samnýtt svo að fyrr gangi að finna lækningu. Hún segir að Siv Friðleifsdóttir alþingismaður og formaður velferðarnefndar Norðurlandaráðs hafi borið tillöguna upp á fundi velferðarnefndar sem haldinn var í tengslum við Norðurlandaþingið í nóvember 2010 og að í janúar 2011 hafi velferðarnefnd samþykkt tillöguna. „Nú ríður á að íslensku þingmennirnir fylgi málinu stíft eftir og hafi það í gegn á sjálfu Norðurlandaþinginu en með því myndi Ísland ekki einungis gera mannkyninu mikinn greiða heldur einnig færa heiður heim í tímans rás," segir Auður að lokum.
Mest lesið „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Innlent Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Innlent Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Innlent Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Innlent Þurfti að lenda flugvél eftir að kennarinn stökk út og hrapaði til bana Erlent Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Innlent Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Innlent Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Innlent Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Innlent Fleiri fréttir Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Skemmdarvargarnir enn ófundnir Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Ætla aftur að mála regnbogafánann Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Rússneska herskipið aftur innan lögsögunnar Jón Ingvar vildi níutíu milljónir en fær ekki krónu Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Ríkisútvarpið braut ekki gegn siðareglum Trump, hóteldeilur og VestFest í kvöldfréttum Sjá meira