Konur haldi áfram að fara í leghálskrabbameinsskoðun 27. júní 2011 18:46
Byrjað verður að bólusetja íslenskar stúlkur í haust við HPV-sýkingum sem geta leitt til leghálskrabbameins. Sóttvarnarlæknir segir þó mikilvægt að konur fylgi áfram þeim tilmælum sem nú eru í gildi um krabbameinsleit. Gengið hefur verið frá samningi um kaup á bóluefni gegn HPV-sýkingum og leghálskrabbameini. Í fyrstu átti einungis að bólusetja stúlkur á tólfta ári en þar sem efnið fékkst á hagstæðu verði verður einnig hægt að koma 13 ára stúlkum að í bólusetningu þennan veturinn. Í framhaldi af því verða 12 ára stúlkur bólusettar árlega í skólum landsins. Haraldur Briem, sóttvarnalæknir, segir bólusetningarnar koma í veg fyrir forstigsbreytingar sem getur leitt til krabbameins síðar. „Við höfum alla ástæðu til þess að ætla það að þetta komi í veg fyrir krabbamein í framtíðinni í velflestum tilfellum. Þó er að merkja að það er þarna 20-30% af veirunni sem bóluefnið tekur ekki til og þess vegna er mjög mikilvægt að konur haldi eftir sem áður áfram að fara í leghálskrabbameinsskoðun." Hvenær má vænta að árangurinn sjáist? „Þetta er langtímafjárfesting og við munum ekki sjá árangurinn fyrr en eftir 20 til 30 ár hvað krabbameinið varðar en forstigsbreytingarnar mun fyrr." Fræðsluefni til stúlkna og foreldra þeirra verður dreift í byrjun skólaárs 2011.
Tengdar fréttir 12 ára stúlkur bólusettar gegn leghálskrabbameini Byrjað verður að bólusetja íslenskar stúlkur í haust við HPV-sýkingum sem geta leitt til leghálskrabbameins. Landlæknisembættið hefur gert kaupsamning við lyfjafyrirtækið GSK um kaup á bóluefni gegn leghálskrabbameini og HPV-sýkingum. Um er að ræða bóluefnið Cervarix sem notað verður í almennum bólusetningum hjá stúlkum hér á landi. Bólusetningin hefst í september næstkomandi en á komendi vetri verða tveir árgangar stúlkna bólusettur, þær sem fæddar eru 1998 og 1999. Í framhaldi af því verða 12 ára stúlkur bólusettar árlega. Talið er að með almennri bólusetningu megi koma í veg fyrir um 60-70% leghálskrabbameins og um 40% alvarlega forstigsbreytinga þess Hér á landi greinast árlega um 17 konur með leghálskrabbamein og um 300 konur með alvarlegar forstigsbreytingar. Á vef Landlæknisembættisins kemur fram að full bólusetning felur í sér þrjár sprautur og er áætlað að bólusett verði í skólum landsins en framkvæmd bólusetningarinnar er á ábyrgð heilsugæslunnar. Fræðsluefni til stúlkna og foreldra þeirra verður dreift í byrjun skólaárs 2011. Þar sem leghálskrabbamein myndast um 20-30 árum eftir HPV sýkingu þá mun líða langur tími þar til að árangur bólusetningarinnar kemur í ljós. Því er mikilvægt að konur fylgi áfram þeim tilmælum sem nú eru í gildi um krabbameinsleit. 27. júní 2011 16:06 Mest lesið Réðust á fleiri olíuflutningaskip Erlent Töluðu saman í klukkutíma Erlent Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Innlent „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Innlent Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi Innlent „Það kostar peninga að afla peninga“ Innlent „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Innlent Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Erlent Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Innlent Fleiri fréttir Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi „Það kostar peninga að afla peninga“ Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Íkveikja í Miðborginni Rukka meira fyrir aksturinn og sérstaklega fyrir veginn Þjóðin eigi náttúrupassa skilið „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Ávarp Höllu: „Slíkur missir snertir okkur öll“ „Maður á ekki að fara í felur með það sem maður er að gera“ Ætlaður hnífur sé tannbursti sem hafi róandi áhrif „Held að ráðherra hafi slegið góðan tón í dag“ Menntavísindasvið greinir PISA-niðurstöður PISA: „Þetta er ákveðinn sorgardagur“ Hafi sest upp í bílinn fyrir mistök Svona var bein útsending Vísis frá setningu Alþingis „Við skulum bara spyrja að leikslokum“ Þingmálaskrá vetrarins: Sanngirnisbætur, sveitarstjórnarlög og samfélagsmiðlabann Viðbrögð við sláandi PISA-könnun Ísland sé með rauða spjaldið í námsárangri barna „Ef þetta á að vera grín er þetta lélegt grín“ Aðalmeðferð hafin í Höfðatorgsmáli: Myndskeið sýnir fórnarlambið kastast upp í loft eftir ákeyrslu Bein útsending: Niðurstöður PISA-könnunar kynntar „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Grænlensk skipsflauta vakti borgarbúa af værum blundi Kynntu þingmálaskrá vetrarins Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Ógnandi, vopnaður hnífi og í annarlegu ástandi Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sjá meira
12 ára stúlkur bólusettar gegn leghálskrabbameini Byrjað verður að bólusetja íslenskar stúlkur í haust við HPV-sýkingum sem geta leitt til leghálskrabbameins. Landlæknisembættið hefur gert kaupsamning við lyfjafyrirtækið GSK um kaup á bóluefni gegn leghálskrabbameini og HPV-sýkingum. Um er að ræða bóluefnið Cervarix sem notað verður í almennum bólusetningum hjá stúlkum hér á landi. Bólusetningin hefst í september næstkomandi en á komendi vetri verða tveir árgangar stúlkna bólusettur, þær sem fæddar eru 1998 og 1999. Í framhaldi af því verða 12 ára stúlkur bólusettar árlega. Talið er að með almennri bólusetningu megi koma í veg fyrir um 60-70% leghálskrabbameins og um 40% alvarlega forstigsbreytinga þess Hér á landi greinast árlega um 17 konur með leghálskrabbamein og um 300 konur með alvarlegar forstigsbreytingar. Á vef Landlæknisembættisins kemur fram að full bólusetning felur í sér þrjár sprautur og er áætlað að bólusett verði í skólum landsins en framkvæmd bólusetningarinnar er á ábyrgð heilsugæslunnar. Fræðsluefni til stúlkna og foreldra þeirra verður dreift í byrjun skólaárs 2011. Þar sem leghálskrabbamein myndast um 20-30 árum eftir HPV sýkingu þá mun líða langur tími þar til að árangur bólusetningarinnar kemur í ljós. Því er mikilvægt að konur fylgi áfram þeim tilmælum sem nú eru í gildi um krabbameinsleit. 27. júní 2011 16:06
Aðalmeðferð hafin í Höfðatorgsmáli: Myndskeið sýnir fórnarlambið kastast upp í loft eftir ákeyrslu