Vill að stjórnlagaráð endurskoði eignarréttarákvæðið 30. maí 2011 13:48 Arnar Jensson. Myndin er úr safni. „
Ég kem því þessu erindi á framfæri við Stjórnlagaráð með þeirri beiðni að farið verði yfir eignaréttarákvæðið í ljósi ofangreinds og það tryggt að stjórnarskráin hindri ekki að hægt verði að setja þessi eða sambærileg alþjóðlega viðurkenndu úrræði í lög á Íslandi,“ skrifar Arnar Jensson, tengifulltrúi Íslands hjá Europol, en hann sendi stjórnlagaráði erindi sem einstaklingur en ekki fulltrúi vegna þess að hann vill meina að eignaréttarákvæði stjórnarskrárinnar njóti meiri lagaverndar á Íslandi en í flestum öðrum löndum. Hann segir í erindi sínu að hann sé að að ljúka við MA-ritgerð í alþjóðasamskiptum við HÍ. Umfjöllunarefni ritgerðarinnar er alþjóðleg þróun, þróun innan ESB og samanburður á úrræðum yfirvalda til að ná til baka ólögmætum ávinningi (e. Assets Recovery eða Proceeds of Crime Recovery) á Írlandi, í Noregi og á Íslandi. „Ég hef því rannsakað ítarlega alþjóðlega þróun, þróun í Evrópu og stöðuna á Írlandi, í Noregi og á Íslandi,“ skrifar hann en hann var á opnum fundi hjá lagadeild HÍ þann 26. maí 2010 um lagaúrræði, sem hefur verið að ryðja sér til rúms á undanförnum árum - „non-conviction based confiscation“, sem beita má innan einkamálaréttarfars þar sem sönnunarþröskuldur er lægri en innan sakamálaréttarfarsins. Þetta lagaúrræði hafa m.a. SÞ, ESB og Evrópuráðið, auk Alþjóðabankans og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, mælt með að aðildarlöndin tækju upp til að ná til baka fjármunum og eignum sem aflað hefur verið með ólögmætum hætti og skila þeim til réttra eigenda samkvæmt grein Arnars. Arnar tekur svo fram að á sama fundi hafi komið fram það álit Róberts Spanó lagaprófessors, að hann drægi í efa að íslensk lagasetning, sem heimiluðu þetta úrræði, mundu standast eignaréttarákvæði stjórnarskrárinnar, vegna þess að eignaréttur nyti meiri lagaverndar á Íslandi en í flestum öðrum löndum. Taldi hann líklegt að þrátt fyrir að Alþingi mundi samþykkja slík lög mundi Hæstiréttur komast að þeirri niðurstöðu að þau stæðust ekki eignaréttarákvæði stjórnarskrárinnar vegna sérstöðu þessa ákvæðis þar, Arnar skrifar svo: „Að mínu áliti, svo og ýmissa annarra sem ég hef rætt þetta við (bæði Íslendinga og erlendra sérfræðinga) er bráðnauðsynlegt að skoða þetta gaumgæfilega til að stjórnarskráin standi ekki í vegi fyrir að hægt sé að setja í lög á Íslandi alþjóðlega viðurkennd úrræði sem auðveldi yfirvöldum að ná til baka ólögmætum ávinningi af brotastarfsemi. Sé ofangreind skoðun Róberts Spanó rétt, mætti halda því fram með sterkum rökum að stjórnarskráin verndi þá sem ná til sín ávinningi og eignum með ólögmætum hætti og standi jafnframt í vegi fyrir því að yfirvöld geti náð ólögmætum ávinningi til baka og skilað honum til réttra eigenda“. Og svo spyr Arnar: „Hvers vegna ætti íslenskur eignaréttur að njóta meiri verndar en annars staðar? Hvers vegna ætti ólögmætur ávinningur að njóta verndar stjórnarskrárinnar?“ Í athugasemdakerfinu við grein Arnars má finna viðbrögð stjórnlagaráðsfulltrúanna Illuga Jökulssonar, Lýðs Árnasonar og Vilhjálms Þorsteinssonar, þar sem þeir óska eftir frekari gögnum um málið og óska einnig eftir dæmi. Fyrir áhugasama má lesa erindi Arnars hér.
Mest lesið Lamdi konu stuttu eftir að hann var stunginn Innlent Rauð norðurljós vegna kórónugoss Innlent Vöruðu við slæmum skilyrðum á brautinni Erlent Ráðherra hafi gefið veiðileyfi á sig Innlent Deilt um verðhækkanir Veitna Innlent Sænski herinn með viðbúnað á Íslandi Innlent Vitleysan „í þessum óþekka strák í Hvíta húsinu“ leiði vonandi til sjálfstæðis Erlent Íslendingur handtekinn á EM Innlent Hljóp á sig Innlent Loðnuvertíð hafin og floti farinn til loðnumælinga Innlent Fleiri fréttir Lamdi konu stuttu eftir að hann var stunginn Sænski herinn með viðbúnað á Íslandi Loðnuvertíð hafin og floti farinn til loðnumælinga Deilt um verðhækkanir Veitna Veita hjúkrunarheimilum ráðgjöf vikulega vegna drykkju eldri borgara Ráðherra hafi gefið veiðileyfi á sig Rauð norðurljós vegna kórónugoss Hljóp á sig Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Vegagerðin ræðst í úrbætur á slysstað banaslyss Össur um öryggismálin, vandi vinstrisins og falin fíkn eldri borgara Íslendingur handtekinn á EM Ráðuneytið vill að fleiri bjóði sig fram Ólafur sakar Ingu um að vera sjúka í að láta mynda sig við skóflustungur „Dapurlegt að gera ákvarðanirnar tortryggilegar“ Hundaeigendur hvattir til að vera á varðbergi Hafi brotist inn til föður barnsmóður sinnar og reynt að myrða hann Handtökur, húsleit og haldlögð vopn í lögregluaðgerðum á Akureyri Vegagerðin bæti hringveginn eftir að grjót banaði ferðamanni Bréf Trumps til Norðmanna og væringar innan VG Verkútboð í vegagerð auglýst eftir langt hlé „Þarf að klára að setja slaufu á pakkann“ „Blasir við að íslenskt launafólk var svikið“ Um tvöfalt fleiri óánægðir en ánægðir með frestun gangna Ekki rétta leiðin að kynda undir læsisstríð Mælir fyrir samgönguáætlun í dag Fann kattarhræ í margnota poka úti í hrauni Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Minnir á hvernig Hitler komst til valda VG og Sanna sameina krafta sína Sjá meira