Gátlisti ökumanna fyrir helgina 27. júlí 2011 15:40 Mynd úr safni
Nú er verslunarmannahelgin framundan og má búast við mikilli umferð um vegi landsins. Umferðarstofa óskar landsmönnum ánægjulegrar helgar og öruggrar heimkomu, en til að tryggja það sem best vill Umferðarstofa koma eftirfarandi á framfæri:Ekki fara of hratt né of hægt Ökumenn eru hvattir til að halda jöfnum hraða og fara hvorki of hratt né of hægt því með og hægum akstri eykst hættan á óþarfa framúrakstri. Ef ökumenn þurfa að fara hægar en almennur hámarkshraði segir til um eins og t.d. ökumenn sem eru með eftirvagna þá er mjög brýnt að þeir hagi akstri þannig að sem auðveldast sé fyrir aðra bíla að komast fram úr. Við framúrakstur skal þess gætt að bannað er að fara framúr yfir heila óbrotna línu sem aðskilur akstursstefnur. Minnt skal á að ökumenn með eftirvagna mega ekki fara hraðar en 80 km/klst.Lítill hópur ökumanna er í mikilli hættu Þótt öryggisbeltin hafi fyrir löngu sannað ágæti sitt og flestir ökumenn noti þau er sá litli hópur ökumanna sem ekki notar öryggisbelti hlutfallslega einn þeirra hópa vegfarenda sem eru í hvað mestri lífshættu. U.þ.b. 20% þeirra sem látast í umferðarslysum eru taldir hafa látist af völdum þess að þeir voru ekki í öryggisbeltum. Einn laus einstaklingur í bíl stofnar ekki bara eigin lífi í hættu heldur og einnig annarra sem í bílnum eru. Við árekstur eða bílveltu kastast viðkomandi til í bílnum og höggþunginn getur orðið margföld þyngd hans. Sem dæmi má nefna að ef maður sem er 75kg af þyngd lendir í árekstri á 70km hraða án bílbelta verður höggþungi hans u.þ.b. 6 tonn. Ökumenn eru hvattir til að ganga tryggilega frá farangri þannig að ekki sé hætta á að hann kastist til og valdi líkamstjóni við árekstur.Manndráp af gáleysi 20% allra banaslysa í umferðinni eru af völdum þess að ökumaður er undir áhrifum áfengis og er þá ekki meðtaldir aðrir vímugjafar. Oft eru áhrifin ekki mikil en afleiðingarnar hinsvegar mjög alvarlegar. Í flestum tilfellum eiga tryggingarfélög endurkröfurétt á ökumann sem valdur er að slysi vegna ölvunar og ef ölvaður ökumaður verður valdur að dauða einhvers er litið á það sem manndráp af gáleysi og kveðnir hafa verið upp fangelsisdómar í slíkum tilfellum. Það er mikilvægt að aðstandendur ökumanns sem hyggst aka undir áhrifum vímuefna reyni að koma í veg fyrir það. Ef það tekst ekki með góðum ráðum skal hringja í 112 og koma með því í veg fyrir að viðkomandi verði valdur að alvarlegu slysi. Það vandamál sem hugsanlega kann að skapast af því að hringt sé í lögreglu er lítilvægt borið saman við mögulegar afleiðingarnar ölvunaraksturs. Hafa skal í huga að áfengi er lengi að fara úr líkamanum og í sumum tilfellum getur þurft að bíða í 14 - 15 klukkustundir áður en áfengi er farið úr blóðinu.Slysatíðni karla og kvenna? Svo virðist sem karlkyns ökumenn séu líklegri til að viðhafa tiltekna áhættuhegðun í umferðinni en konur og nota ekki viðeigandi öryggisútbúnað. Fram kemur í slysaskýrslu Umferðarstofu fyrir árið 2010 að þá voru 44 ökumenn valdir af slysum þar sem ölvun þeirra var aðal orsök slyssins. Af þeim voru 36 karlmenn og 8 konur. Í slysatölum ársins 2010 kemur einnig fram að þeir ökumenn sem urðu valdir af slysum þar sem hraðakstur er aðal orsök voru samtals 50. Þar af voru 7 konur en 43 karlar. Af þessu má ljóst vera að töluvert fleiri karlmenn eru valdir af slysum vegna hraðaksturs og ölvunar en konur og er þessi munur margfalt meiri en sá munur sem er á fjölda karla og kvenna í umferðinni. Starfsmenn Umferðarstofu munu standa vaktina um helgina og miðla upplýsingum og leiðbeiningum til vegfarenda á Bylgjunni, Rás 1 og Rás 2.
Mest lesið Lentu í slysi á flugbraut í Kirgistan: „Börn farin að gráta og fullorðnir farnir að öskra“ Innlent Skemmdarvargar máluðu yfir regnbogafánann Innlent Sníkjudýrsaðferðin komin til Íslands: Hvers vegna var efnunum komið fyrir í sjókistu? Innlent Kominn með nóg af áfengisauglýsingum áhrifavalda Innlent „Hugsið ykkur hvað þetta er nöturleg afmælisgjöf“ Innlent Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán Erlent „Hafa útsendara á sínum snærum á Íslandi“ Innlent Bjóða 250 þúsund krónur fyrir staðsetningu hvalveiðiskipanna Innlent Fréttaútsending stöðvuð til að uppræta áróður Orbáns Erlent Hættuástand skapist eftir fráhvarf 3G Innlent Fleiri fréttir Ummæli Trump um Grænland þurfi ekki að koma á óvart Skemmdarvargar máluðu yfir regnbogafánann Bjóða 250 þúsund krónur fyrir staðsetningu hvalveiðiskipanna Sníkjudýrsaðferðin komin til Íslands: Hvers vegna var efnunum komið fyrir í sjókistu? Hættuástand skapist eftir fráhvarf 3G „Hugsið ykkur hvað þetta er nöturleg afmælisgjöf“ Hiti gæti náð tuttugu og fimm stigum um helgina Bruninn á Stuðlum kominn til ákærusviðs og tíu með réttarstöðu sakbornings Umferð eykst milli ára Handtekinn eftir röð innbrota Lentu í slysi á flugbraut í Kirgistan: „Börn farin að gráta og fullorðnir farnir að öskra“ Sexa lent í Reykjavík í fyrsta sinn í áratugi Kominn með nóg af áfengisauglýsingum áhrifavalda „Hafa útsendara á sínum snærum á Íslandi“ Stígur fram og segir að kviknað hafi í honum út frá rafbyssu lögreglu Kastriot og Sævar ákærðir í Dettifoss-málinu NATO-ríki auki stuðning við Úkraínu Spurning með sálina Girnist enn Grænland, vændiskaup og áfengisauglýsingar áhrifavalda Viðgerð á mótor Herjólfs á áætlun Heilsufarsskoðanir skuli framkvæmdar að lágmarki fjórum sinnum Yngstu fara flestar ferðir Steypubíllinn kominn úr ánni „Ég fer og kíki og þá er þarna þetta stærðarinnar lambalæri“ Vill afnema sektir við vændiskaupum Telja gervigreind hafa verið beitt í þróaðri netárás Dró sambýliskonu sína eftir jörðinni og beitti ítrekað ofbeldi „Mjög er horft til þess sem Bandaríkjaforseti segir“ Íslendingar munu keppa um Bermúdaskálina Ein þurft að þjónusta 80 kaupendur á þremur sólarhringum Sjá meira
Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán Erlent
Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán Erlent