Launabætur hverfa í dýrtíð 24. júní 2011 08:00 Mynd/Pjetur
Tólf mánaða verðbólga verður 5,2 prósent í september og ársfjórðungsverðbólga gæti farið í 6 prósent, gangi spá greiningardeildar Arionbanka eftir. Það þýðir að launahækkanir nýsamþykktra kjarasamninga munu hverfa. Ólafur Darri Andrason, deildarstjóri hagdeildar ASÍ, segir að horfur hafi versnað síðan kjarasamningar voru gerðir. Krónan hafi veikst sem setji aukinn þrýsting á verðlag. Þá sé heimsmarkaðsverð á hrávöru og matvælum mjög hátt. „Hér innanlands virðast ýmsir aðilar ætla að verða snöggir til og henda þessu út í verðlagið." Verðlagsnefnd búvara tilkynnti á miðvikudag um 4,4 prósent hækkun á verði mjólkurlítra og 6,7 prósent hækkun á smjöri. Finnur Árnason, forstjóri Haga, gagnrýnir þessa ákvörðun og segir hækkunina langt umfram það sem forsendur kjarasamninga gefi tilefni til. Hann óttast að það stefni í auknar hækkanir verðlags þar sem fyrirtæki hafi lítið svigrúm til þess að taka á sig hækkanir og verði að ýta þeim út í verðlag. „Þessar hækkanir eru langt umfram það sem væntingar voru um í vetur og það hefur afleiðingar á forsendur kjarasamninga." Ásdís Kristjánsdóttir, forstöðumaður greiningardeildar Arionbanka, segir deildina spá því að aukinn kostnaður vegna launahækkana fari út í verðlag. Þá hafi veiking krónunnar og hækkun hrávöruverðs slæm áhrif og verðbólgu sé að vænta. „Það er slaki í hagkerfinu og ekki von á eftirspurnardrifinni verðbólgu heldur skýrist hún einungis af kostnaðarhækkunum." Ólafur Darri segir nýafstaðna samninga hafa átt að vera fyrsta skref til að vinna til baka þá kaupmáttarskerðingu sem launafólk hefur orðið fyrir frá því að hrunið varð. „Það segir sig sjálft að eftir því sem verðbólgan eykst er verið að höggva í kaupmáttinn." Endurskoðun kjarasamninga fer fram í janúar.- kóp
Mest lesið Vilja beita „ofurvopni“ ESB gegn Bandaríkjunum Erlent Gríðarleg vonbrigði og mikið áhyggjuefni Erlent Setur „stærsta samning í sögunni“ í uppnám Erlent Karólína Helga skákaði sitjandi oddvita í Hafnarfirði Innlent Sambandið aldrei verra: Ísland gæti bæst á listann Innlent Hundruð hermanna í viðbragðsstöðu vegna Minnesota Erlent Önnur stúlka með móður sinni þegar Högni var klófestur Innlent Líkir kærunni við „faglega aftöku“ Innlent Dæmi um að nemendur hafi aldrei mætt í leikfimi Innlent Stjórnvöld „í blindflugi“ í menntamálum í rúman áratug Innlent Fleiri fréttir Ekkert athugavert við fundinn og stjórnin starfshæf Stjórnvöld „í blindflugi“ í menntamálum í rúman áratug Haldið upp á 80 ára afmæli Hveragerðis allt afmælisárið Sambandið aldrei verra: Ísland gæti bæst á listann Dæmi um að nemendur hafi aldrei mætt í leikfimi Grænlandstollar vonbrigði og verðbólga spillir kjarasamningum Stöðugleikasamningarnir gætu sprungið strax í haust Heimsmálin, Grænland, menntun og fjölmiðlun á Sprengisandi Karólína Helga skákaði sitjandi oddvita í Hafnarfirði Ísland standi með Grænlandi og Danmörku Vonar að skólarnir verði frjálsir frá símum í haust Álagning aldrei hærri: Eldsneytisverð hefði átt að lækka enn frekar Líkir kærunni við „faglega aftöku“ „Vegferð ákæruvaldsins til skammar“ Menntamálaráðherra tekur yfir hjúkrunarheimilin Fjögur handtekin á Akureyri grunuð um innbrot Viðvarandi óvissuástand bitni á langtímaáætlunum fyrirtækja Einn endaði á hliðinni og þrjú klemmdust á milli Var í símanum við neyðarlínuna þegar ekið var aftan á hann Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna „Hef hvergi hallað réttu máli“ Önnur stúlka með móður sinni þegar Högni var klófestur Fá þau að vera aftur á lista með Hildi? Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut og tveir fluttir á slysadeild Eigum eftir að sjá hvort Guðbrandur bæti upp fyrir hegðun sína Umfangsmikil lögregluaðgerð við Glerárgötu á Akureyri Öryrkjar eru með hærri laun en eldri borgarar Borgarstjóri fór með rangt mál Gagnrýnin hugsun skipti máli Krafa um að Margrét Löf verði gerð arflaus fer fyrir Landsrétt Sjá meira