Ísland 83 prósent sammála Evrópu 23. júní 2011 07:00 Sameiginleg öryggis- og varnarmálastefna ESB gengur aldrei framar stefnu hvers einstaks aðildarríkis og ekki er gert ráð fyrir sameiginlegum her né herskyldu af neinu tagi, segir í fundafrásögn utanríkisráðuneytis. Mynd/landhelgisgæslan
Ísland tók undir 83 prósent af yfirlýsingum ráðherraráðs ESB um afstöðu sambandsins til mála víðs vegar um heiminn í fyrra, að því er fram kemur í 28. fundafrásögn samninganefndar Íslands gagnvart ESB. Fundafrásagnir þessar eru birtar á vef utanríkisráðuneytisins og fjalla um þau atriði sem samið skal um í aðildarviðræðunum. Í téðri frásögn, um utanríkis-, öryggis- og varnarmál, segir að afar lítil þörf sé á laga- eða kerfis-breytingum í þeim málum, komi til aðildar að ESB. Stefna Íslands sé enda „í aðalatriðum sambærileg stefnu ESB.“ Hins vegar myndi Ísland öðlast við aðild „aðgang að ákvarðanatöku og stefnumótun í málaflokknum,“ segir þar. Því þyrfti að taka þátt í ýmsu nefndastarfi og má gera ráð fyrir að það útheimti fleira starfsfólk. „Aðild að ESB er ekki talin hafa áhrif á grundvallarsamninga Íslands við önnur ríki á sviði öryggis- og varnarmála,“ segir þar. Farið er yfir áherslur Alþingis um að Ísland verði áfram „herlaust land og friðsamt“. Einnig að Ísland eigi ekki að taka þátt í Evrópsku varnarmálastofnuninni. Markmið friðargæsluverkefna ESB sé að styðja við ályktanir Sameinuðu þjóðanna. Almennt falli þau vel að stefnu Íslands og kostnaður við þau sé valfrjáls. Utanríkis- og öryggisákvarðanir ESB þarf að taka einróma og „því er ekki mögulegt að hefja verkefni á vegum ESB án samþykkis allra aðildarríkja,“ segir í frásögninni. Minnt er á áhættumatsskýrslu fyrir Ísland frá 2009 þar sem segir að styrkja beri samstarf við ESB vegna skipulagðrar glæpastarfsemi, farsótta, náttúruhamfara og þess háttar. ESB-ríki eru skuldbundin til að standa saman og veita sameiginlega aðstoð ef eitt ríkið verður fyrir hryðjuverkaárás, innrás eða náttúruhamförum.klemens@frettabladid.is
Mest lesið Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Innlent „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Innlent Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Innlent Þurfti að lenda flugvél eftir að kennarinn stökk út og hrapaði til bana Erlent Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Innlent „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Innlent Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Innlent Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Innlent Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Innlent Fleiri fréttir Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Skemmdarvargarnir enn ófundnir Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Ætla aftur að mála regnbogafánann Sjá meira