Bónus vill afnema skilarétt á kjöti 23. júní 2011 10:40 Líklegar afleiðingar þess að afnema skilaréttinn er minna vöruúrval en jafnframt minni sóun Mynd úr safni
Bónus vill afnema allan skilarétt fyrirtækisins á kjötvörum frá og með 1. nóvember. Þá taka í gildi reglur samkvæmt nýrri matvælalöggjöf sem meðal annars snerta rekjanleika búfjárafurða. Bændablaðið greinir frá því í dag að Guðmundur Marteinsson framkvæmdastjóri Bónuss hafi sent öllum kjötbirgjum fyrirtækisins erindi þar sem þetta kemur fram. Matvöruverslanir hafa almennt unnið eftir þeirri vinnureglu í samskiptum við kjötbirgja að skilaréttur sé á kjöti sem ekki selst í verslunum. Guðmundur segir í samtali við Bændablaðið að þeir sem hafa verið með skilarétt í Bónus hafi nánast haft frjálsan aðgang að verslunum, þeir panti sjálfir og ákveði magnið með tilliti til eigin birgðastöðu. „Ef þeir eiga mikið af bjúgum þá senda þeir mikið af bjúgum í búðirnar sem dæmi. Þeir gera þetta nánast eftir sínu höfði," segir Guðmundur. „Það sem mun hins vegar gerast ef skilarétturinn verður afnuminn, þá mun verslunin sjálf ákveða vöruvalið, panta sjálf og bera þá rýrnun sem verður," segir hann í Bændablaðinu. Steinþór Skúlason, forstjóri SS, fagnar frumkvæði Bónuss. Hann telur þetta jákvætt skref sem muni minnka sóun í keðjunni frá framleiðanda til neytenda. Skiptar skoðanir eru þó um skilaréttinn og segir Sigmundur Ófeigsson, framkvæmdastjóri Norðenska, sem þó er í litlum viðskiptum við Bónus, að hann óttist að vöruúrval í verslunum muni minnka ef skilarétturinn verður afnuminn.Lesa Bændablaðið.
Mest lesið Boðar „norsku leiðina“ í útlendingamálum Innlent Handtökuskipun gefin út á hendur þingmönnum Demókrataflokksins Erlent Reyndist ekki borgunarmaður fyrir vikudvölinni Innlent Vill að maðurinn viðurkenni að hann sé ekki faðir drengsins Innlent Þýskir klettaklifrarar slógust í hóp með björgunarmönnum Innlent Ekið á gangandi vegfaranda við Kaplakrika Innlent Ekki stóra málið hvað við köllum „leyniþjónustuna“ Innlent Hyggjast rukka suma ferðamenn um brottfarartryggingu Erlent „Þá hafa þau aðgang að öllum gögnum íslenska ríkisins meira og minna“ Innlent Neitað um lausn gegn tryggingu Erlent Fleiri fréttir Ekið á gangandi vegfaranda við Kaplakrika Boðar „norsku leiðina“ í útlendingamálum Mjög lítil virkni en mallar enn Reyndist ekki borgunarmaður fyrir vikudvölinni Ekki stóra málið hvað við köllum „leyniþjónustuna“ Þýskir klettaklifrarar slógust í hóp með björgunarmönnum Vill að maðurinn viðurkenni að hann sé ekki faðir drengsins Íbúar á gömlum og fallegum dráttarvélum í Hrísey Þrettán kærðir fyrir ölvunarakstur og hundruð stöðvuð vegna hraðaksturs „Þá hafa þau aðgang að öllum gögnum íslenska ríkisins meira og minna“ Óróinn hríðfellur og goslok líklega í aðsigi Sigurður Björnsson óperusöngvari látinn Viðkvæm gögn í höndum Bandaríkjamanna og eftirlit lögreglu „Fólk er reitt, sárt og finnst það ekki geta treyst sveitarfélaginu“ Öryggi á ferðamannastöðum: Ríkið geti talist brotlegt við mannréttindasáttmála Mikill kraftur í íslensku atvinnulífi Harma að upplýsingar um mengað vatnsból hafi ekki borist strax til íbúa Fagna frestun framkvæmda í Heiðmörk Umdeildum framkvæmdum frestað og mengun í drykkjarvatni Fimm líkamsárásir í Vestmannaeyjum Allir blása í Landeyjahöfn Bónus og Prís virða frídag verslunarmanna en aðrir ekki Fimm vistaðir í fangaklefa eftir hópslagsmál Þórisvatn fullt í fyrsta skipti í sex ár Íslenskar konur gáfu nýjan búning á fjallkonuna í Gimli Þorvaldur gagnrýndur fyrir órökstudda spá um eldgos Einn handtekinn vegna líkamsárasar Gosmóða mældist í Hvalfirði og á Vík í Mýrdal Netþrjótar herja á „mömmur“ landsins Spennandi traktorstorfæra á Flúðum Sjá meira