Vísindavefurinn opnar Evrópuvef 23. júní 2011 15:32 Þorsteinn Vilhjálmsson, aðalritstjóri Evrópuvefsins.
Alþingi hefur gert þjónustusamning við Vísindavef Háskóla Íslands um samningu og rekstur Evrópuvefs. Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, opnaði vefinn í dag á Háskólatorgi og mun Evrópuvefurinn starfa í nánum tengslum við Vísindavefinn. Tilgangur vefsins verður að veita hlutlægar og málefnalegar upplýsingar um hvað það sem fólk kynni að vilja vita og inna um varðandi Evrópumál og Evrópusambandið. Vefurinn verður með svipuðu sniði og Vísindavefurinn. Aðspurður hvernig vefurinn hyggðist gæta að hlutleysi í svörum sínum sagði Þorsteinn Vilhjálmsson, aðalritstjóri vefsins að starfsmenn vefsins hefðu verið vandlega valdir úr hópi 108 umsækjenda. Þær væru báðar einstaklega vel að sér um Evrópumál en væru hvorki harðir stuðningsmenn né andstæðingar evrópuaðildar. Auk þess verði opið fyrir málefnalegar athugasemdir og leiðréttingar lesenda vefsins. Í fréttatilkynningu vefsins segir ennfremur:Í umfjöllun um Evrópusambandið verður aðildarumsókn Íslands að sjálfsögðu höfð í huga en einnig verður reynt að veita almennar upplýsingar enda er Evrópusambandið hluti af umhverfi okkar hvort sem Ísland gengur í það eða ekki. Í fyrstu verður lögð nokkur áhersla á sögu Evrópu og ESB enda má þar finna skýringar á ýmsum atriðum í umræðunni.Stefnt er að því að svör á Evrópuvefnum verði vönduð, einföld og skýr almenningi og án rökvillna. Sérhæfð fræðiorð eru útskýrð, yfirleitt í sérstakri skrá, og samsvarandi orð á ensku sýnd þannig að lesandi geti aflað sér meiri upplýsinga á því máli. Málefnalegar athugasemdir undir fullu nafni verða leyfðar við svör.Aðalritstjóri Evrópuvefsins er Þorsteinn Vilhjálmsson, prófessor emeritus í vísindasögu og eðlisfræði, ritstjóri Vísindavefsins 2000-2010. Aðrir starfsmenn eru Vilborg Ása Guðjónsdóttir, MA í alþjóðasamskiptum, og Þórhildur Hagalín, MA í Evrópufræðum. Í ritstjórn eru auk ritstjóra þau Erna Bjarnadóttir hagfræðingur, Margrét Einarsdóttir lögfræðingur og Sverrir Jakobsson sagnfræðingur. Framkvæmdastjóri Evrópuvefsins er Jón Gunnar Þorsteinsson, ritstjóri Vísindavefsins. Vefstjóri Evrópuvefsins er Guðmundur Daði Haraldsson.Á vefsetri Evrópuvefsins er nú þegar talsvert efni til að skoða og yfirleitt verður bætt við nokkrum svörum á hverjum virkum degi. Veffangið er https://evropuvefur.is/.
Mest lesið Látinn eftir líkamsárás en árásarmaðurinn gengur laus Innlent Fannst látinn í hlíðum Esjunnar Innlent Maðurinn á Esjunni er fundinn Innlent Orri Harðarson er allur Innlent Greta Thunberg á leið heim til Svíþjóðar Erlent Nafn mannsins sem drukknaði við Örfirisey Innlent „Þetta er glórulaust rugl í ráðherra“ Innlent Grunur um að nefhjól úr flugvél hafi lent á Austurvelli Innlent „Ert eiginlega hættur að finna lögreglumenn á samfélagsmiðlum“ Innlent Níu látnir eftir skotárás í Austurríki Erlent Fleiri fréttir Endósamtökin lýsa yfir þungum áhyggjum Grunur um að nefhjól úr flugvél hafi lent á Austurvelli „Fráleitt“ að halda að ríkisstjórnin bakki með veiðigjaldafrumvarpið Fannst látinn í hlíðum Esjunnar „Ert eiginlega hættur að finna lögreglumenn á samfélagsmiðlum“ Maðurinn á Esjunni er fundinn Ágúst Ólafur aðstoðar borgarstjóra Eldur í bílskúr á Álftanesi Nafn mannsins sem drukknaði við Örfirisey Persónuvernd lagði Landlækni en sektin milduð Rannsókn banaslyss í Brúará miði vel Guðrún spyr um há laun æðstu ráðamanna Fullyrðing um slaufun verknámsskóla „kolröng“ Rafmagn komið á aftur VG skoðar samstarf við aðra flokka fyrir kosningar næsta vor Grunur um íkveikju á Hjarðarhaga Mættu heim til lögreglumanns og ógnuðu honum með hníf Orri Harðarson er allur Látinn eftir líkamsárás en árásarmaðurinn gengur laus „Þetta er glórulaust rugl í ráðherra“ Tilkynningum um nauðganir fjölgaði milli ára „Ég trúi ekki öðru en að þetta fari í gegn“ „Þetta er afturför í þjónustu við konur með endómetríósu“ Leit að göngumanni og ein harðasta árásin á Úkraínu Rafmagnslaust víða á Suðurlandi Leitin ekki enn borið árangur Reyndi að stinga lögreglu af á stolnum bíl Hljóðfæraleikarar að óbreyttu á leið í verkfall Leita týnds göngumanns Leita leiða til að auðvelda framsal fanga til heimalands síns Sjá meira