Sena nælir í ævisögu Hemma Gunn 20. maí 2011 18:00 Sena hyggst gefa út ævisögu Hemma Gunn. Óljóst er þó hvort það verður á þessu ári eða því næsta. „
Já, ég get staðfest að við höfum náð munnlegu samkomulagi við Hemma Gunn um að gefa út ævisöguna hans. Hvort það verður fyrir þetta ár eða það næsta kemur síðan bara í ljós. Nú erum við bara að reyna að finna rétta manninn til að skrásetja söguna,“ segir Jón Þór Eyþórsson, deildarstjóri bókadeildar útgáfufélagsins Senu. Það hefur nú bundist fastmælum við einn ástsælasta sjónvarps- og útvarpsmann landsins um að gefa út ævisögu hans. Jón Þór gat ekki gefið upp neinar aðrar upplýsingar og sagði þetta eiga eftir að skýrast á næstunni. Ævisögu Hemma hefur verið beðið með þó nokkurri eftirvæntingu, svo vægt sé til orða tekið. Hermann er einn af fáum sem hafa leikið með bæði handbolta- og fótboltalandsliðinu, hann var atvinnumaður um tíma í Austurríki en eftir að hann sneri sér að sjónvarpinu hefur hann verið órjúfanlegur hluti af íslensku þjóðarsálinni. Hann stjórnaði vinsælasta sjónvarpsþætti landsins, Á tali, og hefur auk þess verið með þætti á borð við Í sjöunda himni og Taktu lagið á Stöð 2. Hermann sagði í samtali við Fréttablaðið fyrir fjórum árum að hann væri að leggja drög að ævisögu sinni og bætti við að einhverjir ættu eftir að svitna við þau tíðindi. Biðin eftir bókinni er því loksins farin að styttast í annan endann. Ekki náðist í Hemma við skrif þessarar fréttar en samkvæmt Fésbókarsíðu hans er útvarpsmaðurinn staddur erlendis.- fgg
Mest lesið Forsetahjónin létu sig ekki vanta Lífið Bieber fékk sér smók í Skagafirði Lífið Svaraði eiginmanninum fyrrverandi: „Eldandi, þrífandi og alandi upp börn“ Lífið Á batavegi fjórum mánuðum eftir slysið Lífið Tekur á „að fara stöðugt á þennan dimma stað“ Lífið „Yngsti „self made“ milljónamæringur undir þrítugu“ Lífið Þorsteinn og Rós orðin hjón Lífið Örn Eldjárn kaupir hús Jóns Ólafssonar Lífið Cruise afþakkaði boð Trump Lífið Björn Bragi, Jón Jónsson og Anna Svava í handritsteymi Áramótaskaupsins Lífið Fleiri fréttir Forsetahjónin létu sig ekki vanta Uppskrift að hinu fullkomna vinkonukvöldi Svaraði eiginmanninum fyrrverandi: „Eldandi, þrífandi og alandi upp börn“ Þorsteinn og Rós orðin hjón Fagna aldarfjórðungsafmæli Ylstrandarinnar á morgun Björn Bragi, Jón Jónsson og Anna Svava í handritsteymi Áramótaskaupsins Á batavegi fjórum mánuðum eftir slysið Ársgömul færsla á Reddit kveikjan að samstarfinu Bieber fékk sér smók í Skagafirði Örn Eldjárn kaupir hús Jóns Ólafssonar Cruise afþakkaði boð Trump Tekur á „að fara stöðugt á þennan dimma stað“ „Það var aldrei uppgjöf í hans huga, alltaf jákvæðni“ Tíramísú sem morgunmatur fyrir alla fjölskylduna Innsýn í molnandi hjónaband: „Persónuleikinn þinn var ekki svona fyrir nokkrum árum“ „Yngsti „self made“ milljónamæringur undir þrítugu“ Heillandi arkitektúr í Garðabæ Valdi hættur að spila í neðri deildunum Gugga í gúmmíbát fagnaði afmæli sínu með heitustu guggum landsins Hall og Oates ná sáttum Embla Wigum og Lindsey Lohan glæsilegar á rauða dreglinum Hannaði innsetningargallann í þrívíddarforriti vegna tímaþröngar Hóta enn á ný að úthýsa vinsælli „spýtukarlanekt“ Hugleiks Skjótt skipast veður í slaufun: Íhugar endurkomu Ragnheiður og Benedikt eiga von á jóladreng Fagnar því að hafa klárað „erfiðustu kappreiðar í heimi“ Ragga Nagli minnir á „grænu flöggin“ í samböndum Stjúpbörn- og foreldrar: „Alltof mörg tilfelli þar sem þetta gengur ekki nógu vel“ Elín Dís og Sigurður keyptu raðhús í Fossvogi á 175 milljónir Söguleg sátt milli há- og lágmenningar á Klapparstíg Sjá meira