Fara í herferð gegn munntóbaksnotkun 20. maí 2011 13:30 Stefán Örn Þórisson
Stjórn Skautafélagsins Bjarnarins í Reykjavík hefur afráðið að fara í átak gegn munntóbaksnotkun á æfingum og leikjum hjá félaginu. Kannanir og sölutölur ÁTVR sýna að munntóbaksnotkun hefur verið í mikilli sókn og ekki síst meðal íþróttaiðkenda. Stefán Örn Þórisson, stjórnarmeðlimur í íshokkídeild Bjarnarins, segir að fyrst og fremst sé hugsað um forvarnagildi þessara aðgerða. Ungir iðkendur innan raða Bjarnarins, bæði í íshokkíi og listdansi, skipti hundruðum. „Við höfum rætt þessi mál mikið að undanförnu, en nú er kominn tími til að láta verkin tala." Stefán segir að á næstu dögum verði send út skilaboð til iðkenda félagsins og annarra liða um að tóbaksnotkun verði bönnuð á heimavelli Bjarnarins í Egilshöll. Gildir bannið jafnt um iðkendur sem og áhorfendur, en Stefán segir að fólki verði vísað frá hafi það tóbak í vörinni.Skautafélagið Björninn hyggst skera upp herör gegn munntóbaksnotkun í tengslum við íshokkíiðkun. Mynd/E.ólStefán tekur fram að hann telji ekki að notkun sé meiri eða minni hjá leikmönnum Bjarnarins en öðrum liðum. „Þetta er hins vegar afar hvimleiður ósiður hjá mörgum og það er mikill misskilningur í gangi um að þetta sé eitthvað skárra en annars konar tóbaksnotkun." Með þessu átaki vill stjórn Bjarnarins leggja sitt af mörkum fyrir yngri iðkendur, enda þurfi ekki að fjölyrða um hversu sterkar fyrirmyndir meistaraflokksmenn eru fyrir krakkana. „Við erum með öflugt barna- og unglingastarf sem við erum að hlúa að og þetta átak er hluti af því. Þátttaka í íþróttafélögum er hluti af uppeldi barna og unglinga og mér finnst við ekki geta skilað af okkur krökkum án þess að okkar boðskapur í þessum málum hafi komið skýrt fram," segir Stefán sem bætir þó við því að hann búist fastlega við því að átakið muni mæta einhverri mótspyrnu. „Þetta verður mögulega umdeilt, en ég ber fullt traust til okkar leikmanna að þeir hafi þroska til að átta sig á þýðingu málsins og vinni með okkur að þessu marki. Endaniðurstaðan er engu að síður sú að tóbaksnotkun er ekki leyfileg í okkar húsi." thorgils@frettabladid.is
Mest lesið „Fólk er bara slegið“ Innlent „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Innlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Innlent Blása á gagnrýni og opna dagatalið Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu Innlent Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Innlent Bannar innflutning á kanadískum vörum Erlent Fleiri fréttir „Við fyrirgefum ráðherra þessa yfirsjón“ Fleiri en einn yfirheyrður en enginn í haldi Segir afnám vaxtabóta bitna á tekjulágum heimilum Blása á gagnrýni og opna dagatalið „Fólk er bara slegið“ Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Breytingar á innanlandsflugi vegna bilunar Langflestir upplifðu sólmyrkvann Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Kristrún flytur stefnuræðuna „Ég er hræddur við þessa menn“ Ekkert heitt vatn á Suðurnesjum í dag Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Vanti ekki fjármagn eða hjálpargögn heldur þrýsting á Ísrael Sex gistu í fangageymslu í nótt Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi „Það kostar peninga að afla peninga“ Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Íkveikja í miðborginni Rukka meira fyrir aksturinn og sérstaklega fyrir veginn Þjóðin eigi náttúrupassa skilið „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Ávarp Höllu: „Slíkur missir snertir okkur öll“ „Maður á ekki að fara í felur með það sem maður er að gera“ Ætlaður hnífur sé tannbursti sem hafi róandi áhrif Sjá meira