Myndar auglýsingu fyrir úrslitaleik Meistaradeildar 20. maí 2011 13:00 Leikmenn Manchester Uniter og Barcelona ögra hver öðrum í auglýsingunni sem Ágúst Jakobsson tók upp. Messi, Rooney og Rio Ferdinand leika allir í auglýsingunni.
Kvikmyndatökumaðurinn Ágúst Jakobsson hefur lokið tökum á auglýsingu fyrir íþróttavöruframleiðandann Nike vegna úrslitaleiks Meistaradeildar Evrópu í fótbolta sem fer fram á Wembley 28. maí. Þar vann hann með leikmönnum Manchester United og Barcelona. „Ég er staddur á Nou Camp í Barcelona að taka upp Barca-strákana," sagði Ágúst, þegar Fréttablaðið hafði samband við hann í gær. „Ég er að bíða eftir því að þeir klári æfingu. Síðan koma þeir inn í stúdíó til mín og við myndum þá."RooneyDaginn áður var Ágúst staddur á æfingasvæði Manchester United og myndaði stjörnurnar Rooney, Ferdinand, Chicharito, Evra og Park fyrir auglýsinguna, sem fer í sjónvarp og á netið í næstu viku. Þar ögra leikmenn beggja liða hver öðrum á sniðugan hátt. „Þetta gekk fínt. Þetta var ekki í fyrsta skipti sem ég vinn með Ferdinand en þetta var í fyrsta skipti sem ég vinn með Rooney. Hann hefur aldrei mætt í tökur hjá mér áður," segir Ágúst, sem hefur tekið upp fjölda fótboltaauglýsinga í gegnum árin. „Ég gerði einu sinni auglýsingu með Ronaldo og Rooney átti að vera líka en mætti ekki. Ég held að hann hafi ekkert voðalega gaman af þessu." Á meðal annarra leikmanna sem Ágúst hefur unnið með á ferli sínum eru Messi, Didier Drogba, Frank Lampard, Fernando Torres, Thierry Henry og Ronaldinho. Einnig hefur hann tekið upp auglýsingar með boxurunum Mike Tyson og Lennox Lewis.Rio Ferdinand.Ágúst mun taka upp aðra auglýsingu í tengslum við úrslitaleik Meistaradeildarinnar. Sú verður gerð fyrir bandarísku sjónvarpsstöðina Fox og er ætlað að kynna næstu leiktíð. Upptökurnar fara fram í kringum Wembley og mun Ágúst mynda undirbúning fyrir leikinn, áhorfendur og svo hugsanlega verðlaunaafhendinguna. Meðan á leiknum stendur mun hann þó sitja upp í stúku og horfa á fótboltaveisluna í blaðamannastúkunni. Nú þegar leiktíðinni í fótboltanum er að ljúka verður minna að gera hjá Ágústi í boltaauglýsingum í sumar. Til að mynda verður aðeins eitt stórt mót haldið í sumar, eða heimsmeistaramót kvenna. Í tengslum við það tók hann upp tvær auglýsingar fyrr á árinu sem voru teknar upp í íþróttahöllinni í Düsseldorf þar sem þýska kvennalandsiðið var í aðalhlutverki. freyr@frettabladid.is
Mest lesið „Undirstaða Hörpu mun hristast undir hreinum og ómenguðum krafti“ Tónlist Bríet sviptir hulunni af kærastanum Lífið Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Lífið „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Lífið Fyrsta lesbían til að prýða Playboy Lífið Haaland hunsaði Holland Lífið Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Lífið Fjörutíu básar í garðinum og götumatur frá öllum heimshornum Matur Sagði Viktoríu Beckham að „fokka sér“ Tónlist Fleiri fréttir Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Sjá meira