Mömmurnar í forsetastúkunni 22. desember 2011 13:00 Mömmur Mugisons og félaga hans í hljómsveitinni verða í forsetastúkunni í Hörpunni í kvöld. fréttablaðið/stefán
Mæður Mugisons og hljómsveitarfélaga hans verða í forsetastúkunni á ókeypis tónleikum þeirra í Hörpunni í kvöld. „Venjulega situr forsetinn í forsetastúkunni. Ég tók miða frá fyrir mömmur okkar þannig að allar mömmurnar verða í forsetastúkunni,“ segir Örn Elías Guðmundsson, Mugison. Hann hlakkar mikið til tónleikanna í kvöld, sem verða þrennir talsins. „Þetta leggst rosalega vel í mig. Ég hlakka til að heyra hvernig röddin verður á þriðju tónleikunum, hvort maður verður bara Rod Stewart allan tímann,“ segir Mugison, sem lauk nýverið ókeypis tónleikaferð sinni um landið. „Það verður gaman að sjá hvernig fílingurinn verður í salnum og hvort það eru ekki allir komnir í jólafíling.“ Haglél, sem var kjörin plata ársins í Fréttablaðinu í gær, hefur selst gríðarlega mikið að undanförnu, sérstaklega eftir að Mugison tilkynnti um ókeypis tónleikana í Hörpu. Aðspurður segir hann að ætlunin með tónleikunum hafi ekki verið sú að selja fleiri plötur. „Ég skil að einhverjir skuli hugsa þannig en þegar þessi ákvörðun var tekin var það ekki markaðsplott. Ég var búinn að selja hátt yfir tíu þúsund plötur og það var vel mánuður í jól. Mér fannst það bara algjört grín og líka móttökurnar á túrnum. Fyrir mér fannst mér þetta vera góð leið til að segja takk.“ - fb
Mest lesið Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Hefur þegar fengið starfstilboð Lífið Harbour rýfur þögnina Bíó og sjónvarp Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Lífið Hvað veistu um… árið 2010? Lífið „Það má herma“ Tíska og hönnun Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Lífið Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Lífið Swae Lee heldur tónleika á Íslandi Tónlist Guðrún Ýr og Birnir í eina sæng Tónlist Fleiri fréttir Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Sjá meira