Kann betur við mig í uppvaskinu 4. mars 2011 16:00 fréttablaðið/vilhelm
Þúsundþjalasmiðurinn Friðrik Weisshappel víkkar út veldi sitt á morgun með opnun nýs Laundromat Café í Austurstræti. Fyrir rekur Friðrik tvö samnefnd kaffihús í Kaupmannahöfn við góðar undirtektir og segir nýjustu viðbótina fylgja sömu stefnu. „Hugmyndin er að vera með kaffihús sem kappkostar við að bjóða upp á góða þjónustu, meiri þjónustu en fólk á að venjast; hraðari nettengingu, fleiri tímarit, þvottavélar og stórt barnasvæði,“ segir hann með ríkri áherslu, en líkt og fyrirmyndin er nýja kaffihúsið hannað með þarfir fjölskyldna í huga. Þannig liggja tvö handrið eftir stiganum á neðri hæðina, annað fyrir fullorðna en hitt, sem er lægra, er ætlað börnum. Þar tekur við fjölskylduvænt rými, búið hægindastólum fyrir fullorðna og börn, og leiksvæði þar sem boðið verður upp á sérstakar sögustundir um helgar. Matseðillinn er líka sniðinn að þörfum allrar fjölskyldunnar. „Hann er ansi fjölbreyttur, allt frekar einfalt og vel úti látið,“ segir Friðrik, kampakátur með afraksturinn. En verða einhverjar nýjungar, séríslenskar kannski, á honum? „Já, til dæmis lambahryggur á sunnudögum,“ svarar hann og bætir við að sjálfur komi hann þó ekki nálægt matseldinni. „Ég get vel eldað og geri það gjarnan heima en kann betur við mig í uppvaskinu og finnst það besta starfið í húsinu.“ Frá því að Friðrik áformaði opnun kaffihúss í Reykjavík hefur hann verið með annan fótinn á landinu. Hann hefur þó ekki í hyggju að fjölga hér frekar kaffihúsum eða flytja heim í bráð enda hamingjusamlega kvæntur tveggja barna faðir í Kaupmannahöfn. En hræðist hann ekki tilhugsunina að reka kaffihús í öðru landi? „Nei, enda verður staðurinn dagsdaglega rekinn af öðrum. Það mun ganga vel enda er ég umkringdur úrvals samstarfsfólki sem ég treysti hundrað prósent,“ segir hann og brosir. roald@frettabladid.is
Mest lesið Reyndist sannspár um koss dauðans Lífið Michael nær ekki að fela fílinn í herberginu Gagnrýni Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga Lífið Birna María og Egill eignuðust dreng Lífið „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Stórmynd Sádanna stefnir í stærsta flopp sögunnar Bíó og sjónvarp Bestu kvikmyndir 21. aldarinnar Bíó og sjónvarp Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Lífið Þetta hefur gefið mér nýtt líf Lífið samstarf Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Lífið Fleiri fréttir Oddvitaáskorunin: Ice ekki lengur eins viðeigandi viðurnefni vestanhafs Birna María og Egill eignuðust dreng Oddvitaáskorunin: Að stöðva Borgarlínuna efst á lista Reyndist sannspár um koss dauðans Britney ákærð fyrir ölvunarakstur „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Stór brjóst eru stór Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Fengu Dern í stað Bonham Carter Jóhann Alfreð með púlsmæli og fékk að finna fyrir því Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Oddvitaáskorunin: Besti landsbyggðarandinn þrátt fyrir fjölmenni Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Ókunnug kona í salnum lifði sig gríðarlega inn í þáttinn Adam fór á skeljarnar í Kerlingarfjöllum Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Höguðu sér vel á árshátíð Haga Sjá meira