Innlent

Ræddi ekki mál Guðrúnar Ebbu

Karl Sigurbjörnsson
Karl Sigurbjörnsson
„Því miður hafa verið og eru menn sem skreyta sig skikkju kristinnar trúar til að svala ofbeldisfýsn og valdalosta, eins og dæmin sanna. Það er ekki allt geðfellt sem sjá má í ásjónu trúarinnar,“ sagði Karl Sigurbjörnsson biskup í predikun sinni í Reyðarfjarðarkirkju á sunnudag.

Er þetta í fyrsta sinn sem Karl talar opinberlega síðan viðtal Guðrúnar Ebbu Ólafsdóttur fór fram fyrir rúmri viku. Biskup minntist þó ekki berum orðum á Guðrúnu Ebbu eða föður hennar, en talaði mikið um stöðu kirkjunnar, bæði hér á landi og í Vestur-Evrópu. Hann minnti bæjarbúa meðal annars á mikilvægi þess að gera greinarmun á heilbrigðu og brengluðu í trúarefnum, eins og öðru. - sv




Fleiri fréttir

Sjá meira


×