Spyr hvort ráðherra ætli að skikka flugmenn til að vinna í frítímanum Jóhanna Margrét Gísladóttir skrifar 25. júní 2011 20:00 kjartan jónsson.
Allt bendir til þess Icelandair muni aflýsa sex flugferðum til viðbótar á mánudag eftir að upp úr slitnaði í samningaviðræðum flugmanna og Icelandair hjá ríkissáttasemjara í dag. Flugmenn eru ósáttir við yfirlýsingar ráðherra. Mikið ber í milli deiluaðila og hefur annar fundur ekki verið boðaður hjá ríkissáttasemjara. Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra sagði í fréttum okkar í gærkvöld að hún útilokaði ekki lög á kjaradeilu flugmanna. Þungt hljóð var í Kjartani Jónssyni framkvæmdastjóra félags íslenskra atvinnuflugmanna. „Það er bara allt stopp miðað við þá bjartsýni sem við höfðum í gær þá er hún horfin í augnablikinu, þetta virtist ganga ágætlega í gær þangað til að yfirlýsing ráðherra kom á mjög skemmtilegum tíma þegar menn sátu við samningaborð og það varð að mínu mati til þess að viðsemjendur okkar hölluðu sér aftur í sætinu og renndu sér frá borðinu og bíða eftir því að vera skornir úr snörunni," sagði Kjartan. Hann segir að lög á yfirvinnubann sé engan veginn raunhæft. „Ætlar hún að neyða okkur til að mæta í vinnuna á frídögum okkar, það er það eina sem við erum ekki að gera í augnablikinu, við neitum að vinna á frídögum, við mætum á varavaktir og mönnum öll flug sem við erum bókaðir á," sagði Kjartan. Yfirvinnubann flugstjóra hófst í gær og er Icelandair þegar búið að aflýsa sex flugferðum á morgun. Guðjón Arngrímsson upplýsingafulltrúi Icelandair sagði í samtali við fréttastofu í dag að sex flugferðum til viðbótar á aðfararnótt mánudagsins verði aflýst. Hann segir hins vegar ekki sjá fram á frekari breytingar á flugáætlun það sem eftir er mánaðarins.
Mest lesið Þetta fær Hildur í laun Innlent Göngutúr við HR endaði í Landsrétti Innlent „Ég skil ekki að það séu ekki fleiri áhyggjufullir yfir þessu” Innlent Samþykkja 3,5 prósenta launahækkun Innlent Sonur krónprinsessunnar dæmdur í fjögurra ára fangelsi Erlent Trump enn ekki svarað fundarbeiðni Kristrúnar Innlent Þrír handteknir og einn á spítala vegna stunguárásar Innlent Hrapaði til bana eftir að kennari gleymdi að festa reipi Erlent Vopnað rán í Reykjavík Innlent Íslenskar vefsíður í vandræðum vegna bilunar í ljósleiðarakerfinu Innlent Fleiri fréttir Skaðinn sem þau hafi þurft að þola „óásættanlegur með öllu“ Skar kindur á háls án þess að svipta þær meðvitund fyrst Þórdís Lóa ráðin framkvæmdastjóri Félagsbústaða Hvetja fólk til að gerast gjafar: „Það er alltaf pláss fyrir fleiri gæðablóð“ „Við getum ekki framkvæmt rauneftirlit á dagvinnutíma“ Baráttan um 17. júní Samþykkja 3,5 prósenta launahækkun Þetta fær Hildur í laun Vill sjá reglur um samfélagsmiðla sem fyrst „Ég skil ekki að það séu ekki fleiri áhyggjufullir yfir þessu” Íslenskar vefsíður í vandræðum vegna bilunar í ljósleiðarakerfinu „Í góðu lagi að gefa henni orðið núna“ Engin þörf á aukaþingi í ágúst og veitingamenn ósáttir með vinnubrögð lögreglu Trump enn ekki svarað fundarbeiðni Kristrúnar Rændur á víðavangi vegna fíkniefnaskuldar Hefja borun rannsóknarholu á Landeyjasandi í vikunni Þrír handteknir og einn á spítala vegna stunguárásar Sjöunda björgunarskipið komið til heimahafnar Þingmenn á síðustu metrunum Vopnað rán í Reykjavík Göngutúr við HR endaði í Landsrétti Segir upptöku evrunnar geta leitt til aukins atvinnuleysis Óskiljanlegt að ráðuneytið skoði bara stöðu námsgagna í stærðfræði Voru komnir með sína eigin dyraverði þegar lögregluna bar að garði Árekstur á Kársnesi Laus úr sjálfheldu eftir um fimm tíma strand Vill samfélagssáttmála vegna tómstundaiðkunar barna Hákarlaárás og fyrrverandi varaformaður Viðreisnar vonsvikinn Um 400 skjálftar hafa mælst í þéttri hrinu Sagnfræðirannsóknir, upptaka evru, menntakerfið og málefni barna Sjá meira