Aðdáendasíður til heiðurs Pippu 3. maí 2011 19:00 Philippa Middleton var glæsileg sem fyrsta brúðarmær í konunglega brúðkaupinu og vakti athygli kjóll hennar athygli sem beindist einkum að afturhluta Pippa sem hefur eignast fjöldan allann af aðdáendum á internetinu.
Breska þjóðin heldur varla vatni yfir yngri systur Katrínar hertogaynju af Cambridge, Pippu Middleton, en hún lék lykilhlutverk sem fyrsta brúðarmær í konunglega brúðkaupinu og stóð sig með prýði. Partýljónið Pippa getur orðið næsta stjarna Bretlandseyja ef hún vill. Pippu Middleton grunaði eflaust ekki að hún myndi hleypa af stað fjölmiðlasirkús þegar hún steig brosandi út úr brúðarbílnum til að hjálpa systur sinni að laga slörið. Í þröngum kjól úr smiðju Söruh Burton fyrir Alexander McQueen og með hvítt brosið að vopni heillaði hin 27 ára gamla Philippa Middleton, kölluð Pippa, alla upp úr skónum. Kjóllinn virtist beina athygli sumra að afturenda Pippu sem hefur einnig fengið sinn skerf af athyglinni og hafa meðal annars verið stofnaðar margar aðdáendasíðurnar honum til heiðurs, þeirra á meðal Pippa Middleton's Ass Appreciation Society á Facebook. Sumir sérfræðingar vilja meina að klæðnaður brúðarmærinnar hafi farið yfir strikið, þröngt sniðið og flegið hálsmálið sæmi ekki konunglegu brúðkaupinu. Aðrir vilja meina að Katrín hertogaynja hafi gjarna viljað deila svíðljósinu með litlu systur. Daily Mail er með ýtarlega grein um litlu systurina og veltir því fyrir sér hvernig fröken Pippa ætli að fara með frægðina. Aðeins eitt ár er á milli systranna sem eru samkvæmt vinum og vandamönnum mjög ólíkar. Flestir vilja meina að partýljónið Pippa hafi frekar verið líkleg til að næla sér í frægan og ríkan mann en hin hljóðláta eldri systir. Pippa er vön að vera miðpunktur athyglinnar. Pippa vinnur hjá veisluþjónustu en þar sameinar hún tvö af sínum helstu áhugamálum, partý og tengslamyndun. Einkalíf hennar er komið í fókus, en hún er í sambandi með fyrrum krikketspilarnum og núverandi bankastarfsmanninum Alex Loudon á meðan margir vona að hún hreinlega taki saman við yngri bróður Vilhjálms, Harry Bretaprins en þau gengu saman út kirkjugólfið á föstudaginn. Samkvæmt breskum miðlum, sem bíða nú í ofvæni eftir næstu skrefum Pippu, hefur biðin í skugganum á stóru systur verið óþolandi. Nú gæti hennar tími verið komin og við eigum von á að lesa og heyra meira af fröken Pippu Middleton í framtíðinni. alfrun@frettabladid.is
Mest lesið Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Lífið Bríet sviptir hulunni af kærastanum Lífið Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið „Undirstaða Hörpu mun hristast undir hreinum og ómenguðum krafti“ Tónlist Stytta af Charlie Kirk á Times Square Lífið Fyrsta lesbían til að prýða Playboy Lífið „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Lífið Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Lífið Haaland hunsaði Holland Lífið Geislasverð Loga Geimgengils seldist á 470 milljónir Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Sjá meira