Hæstiréttur staðfestir tveggja ára dóm yfir íkveikjumanni 21. júní 2011 16:47 Hæstiréttur staðfesti dóminn yfir Auðuni Þorgrími.
Hæstiréttur staðfesti í dag tveggja ára fangelsisdóm yfir Auðuni Þorgrími Þorgrímssyni fyrir að hafa borið eld að íbúð að Tryggvagötu í Reykjavík í janúar 2009. Maðurinn var sakfelldur fyrir að hafa hellt bensíni úr plastbrúsa inn í stigagang húsnæðisins og á gólf jarðhæðar hússins og kveikt í. Húsið varð alelda og komst einn íbúi hússins með naumindum út áður en eldurinn breiddist út. Í aðalmeðferð málsins fyrir héraðsdómi játaði Auðunn sök í málinu og kvaðst hafa komist að því að fyrrum eiginkona hans, sem þarna átti heima, hefði verið í tygjum við tvo aðra karlmenn sem hún hefði einnig haft fé af. Hún hafi hringt í hann fyrr um morguninn og vakið hann en hann hafði verið á nokkurra daga fylliríi. Hún hafi verið „hálf geggjuð" eins og hann orðaði það. Hann hafi þá í reiði tekið „þá skyndiákvörðun að loka þessu greni" með því að kveikja í því. Hafi hann komið því strax í verk með því að fara þangað og hella þar bensíni úr plastbrúsa sem hann vissi að var í baðherbergi á efri hæð hússins ásamt öðrum eldfimum efnum tilheyrandi tælenskum veitingastað í nálægu húsi. Í dómi héraðsdóms segir ennfremur að hann hafi verið með eldspýtur á sér enda hafi hann reykt á þessum tíma.Segist hafa gengið úr skugga um að enginn væri í húsinu Að sögn mannsins voru útidyrnar ólæstar, enda læsingin ónýt. „Hafi hann tekið bensínbrúsann þarna inni og rekið út stúlku sem þarna var inni. Þá hafi hann gætt að því hvort fleiri væru í húsinu með því að líta inn í íbúðarherbergin. Hann hafi svo hellt bensíninu yfir stigann og kveikt í. Að þessu loknu hafi hann farið heim til sín." Maðurinn fullyrti ennfremur að fyrir utan leiguherbergi hafi í húsinu margs konar starfsemi viðgengist, „svo sem vændi, kjötiðnaður fyrir tælenskan veitingastað, fíkniefnasala, viagra-dreifing, inn- og útflutningsverslun og fleira. Hann kveðst hafa heyrt að til stæði að rífa húsið og byggja nýtt á lóðinni." Konan sem var inni í íbúðinni skýrði frá því að hún hafi verið nývöknuð þegar hún hafi heyrt skrölta í póstlúgunni. Þegar hún hafi að gáð sá hún hvar einhver tróð sígarettu inn um lúguna. „Hafi hún opnað dyrnar og spurt hvað væri á seyði en maðurinn þá ýtt henni frá og út úr húsinu. Hann hafi svo kveikt í bensíni en hún hlaupið út á veitingastofuna Krua Thai. Hún segist aðspurð ekki hafa orðið vör við það að maðurinn aðgætti hvort fólk væri þarna áður en hann kveikti í," að því er segir í dómi héraðsdóms.
Mest lesið Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Innlent „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Innlent Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Innlent Þurfti að lenda flugvél eftir að kennarinn stökk út og hrapaði til bana Erlent Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Innlent „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Innlent Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Innlent Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Innlent Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Innlent Fleiri fréttir Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Skemmdarvargarnir enn ófundnir Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Ætla aftur að mála regnbogafánann Sjá meira