Fagna jarðminjagarði á Reykjanesi 26. desember 2011 16:07 Reykjanes.
Náttúruverndarsamtök Suðvesturlands fagna nýlegri ákvörðun Grindavíkurbæjar um stofnun jarðminjagarðs (Geopark) á Reykjanesi. Sveitarfélögin á Suðurnesjum hafa nú ákveðið að ganga til samstarfs um stofnun slíks garðs. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Náttúruverndarsamtökunum. Þar segir að slíkur garður sé vel til þess fallin að auka almenna vitund um mikilvægi náttúruverndar á svæðinu. Þá segir einnig í tilkynningunni að huga þurfi vandlega að málaflokknum, til dæmis með tilliti til virkjana og þeim mannvirkjum sem þeim fylgja. Einnig þarf að gera ráðstafanir til að koma í veg fyrir utanvegaakstur, sem verið hefur mikið vandamál á Reykjanesskaga. Svo segir orðrétt: Slíkur jarðvangur, Katla Geopark, hefur nú verið stofnaður á Suðurlandi og þar sér fólk fram á margvísleg tækifæri honum tengdum. Við erum sannfærð um að svo verði einnig á Suðurnesjum. Verði rétt á málum haldið getur slíkur garður auðveldlega skapað fjölda starfa og tækifæra í ferðaþjónustu enda liggur Reykjanesskaginn vel við slíku vegna nálægðar við alþjóðaflugvöll og ekki síst vegna þeirrar jarðfræðilegu sérstöðu sem svæðið hefur. Náttúruverndarsamtök Suðvesturlands minna á að 83% þeirra erlendu ferðamanna sem sækja landið heim eru hingað komin í þeim tilgangi að upplifa ósnortna náttúru. Þeir eru ekki komnir hingað til að skoða stöðvarhús, borstæði, háspennulínur, línuvegi, hitaveiturör og önnur þau mannvirki sem fylgja jarðvarmavirkjunum. Stjórn Náttúruverndarsamtaka Suðvesturlands.
Mest lesið Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Innlent Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Innlent Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Innlent Hafði komið sér fyrir á háalofti hótels Innlent Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Innlent Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Innlent Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Innlent Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Töpuðu tæpum hundrað milljónum Innlent Minnst fimmtán særðir eftir hnífa- og efnaárás í Japan Erlent Fleiri fréttir Lögreglumenn eltu lausa hesta Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Hafði komið sér fyrir á háalofti hótels Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Umferðin róleg í kirkjugörðunum Töpuðu tæpum hundrað milljónum Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Sjá meira