Innlent

Hjón stefna DV og Jóhannesi Kr. fyrir brot á höfundarrétti

Jóhannes Kr. Kristjánsson.
Jóhannes Kr. Kristjánsson.
Hjón hafa stefnt DV og Jóhannesi Kr. Kristjánssyni, þáverandi blaðamanni DV, fyrir að brot á höfundarrétti þegar hann á að hafa birt tvívegis tvær myndir í eigu hjónanna.

Samkvæmt lögfræðingi hjónanna, Vilhjálmi H. Vilhjálmssyni, birtust myndirnar tvær, tvívegis í umfjöllun blaðsins um hjónin, en þar var greint frá því að hjónin byðu upp á meðferð við MND sjúkdóminum og Krabbameini.

Siðanefnd Blaðamannafélags Íslands hefur áður úrskurðað blaðið og Jóhannes, brotleg við þriðju grein siðreglna blaðamannafélagsins, þar sem nefndinni þótti Jóhannes hafa sett fram fyrirsögn sem ekki þótti stoð fyrir í umfjölluninni sjálfri. Þar var því haldið fram að hjónin byðu upp á lækningu við sjúkdómunum.

Þótti brotið ámælisvert að mati siðanefndarinnar.

Fyrirtaka fer fram í máli hjónanna gegn Jóhannesi og DV í dag. Þau krefjast þess að fá greiddar alls fjögur hundruð þúsund krónur fyrir birtingu myndanna.

Að sögn Vilhjálms er um keimlíkt mál að ræða og þegar Séð og Heyrt var dæmt fyrir að taka mynd af leikstjóranum Quentin Tarantino af vefsíðu konu, án heimildar. Þá var blaðið dæmt til þess að greiða fyrir birtingu myndarinnar.

Jóhannes er núna fréttamaður í Kastljósi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×