Innlent

Hæstiréttur staðfestir þriggja og hálfs árs nauðgunardóm

Hæstiréttur Íslands staðfesti í dag þriggja og hálfs árs fangelsisdóm héraðsdóms yfir karlmanni sem þvingaði stúlku til samræðis og að hafa við sig munnmök.

Framburður mannsins þótti ótrúverðugur þar sem töluverð ósammræmis gætti í framburði hans hjá lögreglu og fyrir dómi um klæðaburð stúlkunnar á meðan brotinu stóð. Einnig þótti framburður hans ekki vera í samræmi við staðsetningu lífsýna á vettvangi, áverka stúlkunnar eða samskipta þeirra á milli í kjölfar brotsins.

Afur á móti þótti Hæstarétti framangreind atriði vera í samræmi við frásögn stúlkunnar og var framburður hennar talinn vera trúverðugur. Maðurinn þarf, eins og fyrr segir, að sæta fangelsi í þrjú og hálft ár, sem og að greiða stúlkunni eina milljón í miskabætur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×