Aftur réttað yfir lögreglumanni vegna kynferðisbrots 21. október 2011 10:23
Það er óalgengt að dómar fjölskipaðs héraðsdóms séu ómerktir og þeim snúið aftur í hérað eins og raunin varð þegar Hæstiréttur ómerkti sýknudóm yfir lögreglumanni á Norðvesturlandi, sem var ákærður fyrir kynferðisbrot gegn fimmtán ára gamalli stúlku. Slíkt er þó alls ekki einsdæmi. Aðeins einn dómari starfar í Héraðsdómi Norðurlands vestra, en hann var vanhæfur til þess að dæma í málinu. Því var dómurinn skipaður héraðsdómurum frá héraðsdómi Norðurlands eystra. Eins og venjan er í kynferðisbrotamálum, þá dæmdu þrír dómarar í málinu. Það voru þeir Þorsteinn Davíðsson, sem var dómsformaður, Erlingur Sigtryggsson og Barbara Björnsdóttir settur héraðsdómari. Lögreglumaðurinn var sýknaður í héraði, og það sem virðist meðal annars hafa haft áhrif á niðurstöðu héraðsdómara var framburður fimmtán ára gamals sonar lögreglumannsins, sem sagðist hafa orðið vitni að samskiptum stúlkunnar og lögreglumannsins inni í þvottahúsi, þar sem atburðurinn átti að hafa átt sér stað í maí á síðasta ári. Í Hæstarétti er vikið að framburði sonarins. Og er það niðurstaða Hæstaréttar að líkur séu á að niðurstaða héraðsdóms um sönnunargildi munnlegs framburðar fyrir dómi kunni að vera röng svo að einhverju skipti um úrslit málsins. Þá bendir Hæstiréttur einnig á að héraðsdómur virðist ekki hafa tekið nægilega til greina óbein sönnunargögn í málinu, sem gætu stutt frásögn stúlkunnar, þar með talið frásagnir vitna um andlegt ástand hennar strax í kjölfar ætlaðs brots og sérfræðinga sem haft hafa hana til meðferðar. Nú er svo komin upp sú staða að aftur þarf að rétta í málinu. Dómari Héraðsdóms Norðurlands vestra er óhæfur sem fyrr og samkvæmt nýlegum lögum þarf að finna nýja dómara til þess að dæma í málinu. Ekki er ljóst hvenær málið verður tekið fyrir í héraði að nýju, en úrskurður Hæstaréttar birtist í gær.
Tengdar fréttir Sýknudómur í kynferðisbrotamáli ómerktur Hæstiréttur ómerkti og vísaði aftur í hérað sýknudómi yfir karlmanni sem var ákærður fyrir kynferðisbrot gegn fimmtán ára stúlku í þvottahúsi á heimili sínu. Manninum var gefið að sök að hafa káfað tvisvar innanklæða á rassi stúlkunnar Í héraðsdómi var komist að þeirri niðurstöðu að framburður vitna, sem báru að stúlkan hefði sagt þeim frá atvikinu, sýndi að stúlkan hefði verið sjálfri sér samkvæm. 20. október 2011 16:40 Mest lesið Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Erlent Berserksgangur á gististað Innlent Fleiri fréttir Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Sjá meira
Sýknudómur í kynferðisbrotamáli ómerktur Hæstiréttur ómerkti og vísaði aftur í hérað sýknudómi yfir karlmanni sem var ákærður fyrir kynferðisbrot gegn fimmtán ára stúlku í þvottahúsi á heimili sínu. Manninum var gefið að sök að hafa káfað tvisvar innanklæða á rassi stúlkunnar Í héraðsdómi var komist að þeirri niðurstöðu að framburður vitna, sem báru að stúlkan hefði sagt þeim frá atvikinu, sýndi að stúlkan hefði verið sjálfri sér samkvæm. 20. október 2011 16:40