Innlent

Sex fluttir á slysadeild

Áreksturinn var mjög harður og voru sex fluttir á slysadeild.
Áreksturinn var mjög harður og voru sex fluttir á slysadeild. mynd/stöð2
Sex voru fluttir á slysaedeild í þremur sjúkrabílum eftir harðan árekstur á Kringlumýrarbrautinni rétt eftir klukkan tólf í dag. Svo virðist sem ekið hafi verið bilaðan bíl sem var kyrrstæður á veginum. Farþegar sem voru inni í bílnum biðu eftir aðstoð þegar bíll keyrði aftan á hann á miklum hraða.

Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu er mikil olía og bensín á veginum og er nú unnið að því að hreinsa veginn. Ekki liggur fyrir hvort einhver af þessum sex er alvarlega slasaður.

Kringlumýrarbrautin verður lokuð í einhvern tíma á meðan unnið er að hreinsun.

Uppfært 13:51:

Kringlumýrarbraut hefur verið opnuð fyrir umferð




Fleiri fréttir

Sjá meira


×