Innlent

Ríkissaksóknari skoðar hvort málinu verði áfrýjað

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Ríkharð Júlíus Ríkharðsson fékk þriggja og hálfsars dóm.
Ríkharð Júlíus Ríkharðsson fékk þriggja og hálfsars dóm.
„Það á bara eftir að skoða það hvort þessu verður áfrýjað," segir Hulda María Stefánsdóttir, settur saksóknari hjá embætti Ríkissaksóknara.

Hún flutti mál gegn þremur mönnum sem voru dæmdir í fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun fyrir svokallað Black-Pistons mál. Ríkharð Júlíus Ríkharðsson fékk þyngstan dóm, þriggja og hálfs árs fangelsi, Davíð Freyr Rúnarsson fékk þriggja ára dóm og sautján ára vitorðsmaður þeirra fékk hálfsársdóm.

Hulda María bendir á að sakborningar hafi einnig kost á því að áfrýja dómnum. Mennirnir voru sakfelldir fyrir frelsissviptingu í ávinningsskyni og sérstaklega hættulega líkamsárás en sýknaðir fyrir tilraun til ráns. Brotaþoli í málinu fékk 1580 þúsund krónur dæmdar í miskabætur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×