Vinna við bráðabirgðabrú hefst í dag 11. júlí 2011 09:02 Mynd/Vilhelm
Vinna við bráðabirgðabrú yfir Múlakvísl hefst í dag og er Vegagerðin þegar byrjuð að flytja vinnuvélar og efni til brúargerðar. Líkt og kunnugt er eyðilagðist brúin yfir Múlakvísl í hamfaraflóði um helgina og þjóðvegur eitt lokaðist. Ferðaþjónustubændur krefjast þess að yfirvöld sýni þann vilja í verki með því að láta einskis ófreistað að koma á vegasambandi um hringveginn án tafar. Vegagerðin hefur kallað hátt í tuttugu manns úr leyfum til að hefja störf við brúargerðina. Þórður Tyrfingsson, deildarstjóri hjá Vegagerðinni, sagði á Morgunvaktinni á Rás 2 í morgun að hafist verður handa við a koma upp bráðabirgðabrú strax í dag. Hægt er að aka hjáleið um Fjallabaksleið nyrðri, en hún er aðeins jeppafær. Þá hefur bannsvæði vegna ferðamanna á Mýrdalsjökli verið minnkað.Ferðaþjónusta einn af hornsteinum byggðar „Við lýsum skilningi okkar á því að það taki nokkurn tíma að gera fært yfir ána á nýrri brú, jafnvel þó til bráðabirgða sé, en með þeim stórvirku vinnuvélum sem tiltækar eru, hvetjum við til að unnið verði að því að koma á vegasambandi um hjáleið og að þeim aðilum sem ekki treysa sér til að aka um slíka vegslóð verði veitt aðstoð," segir í tilkynningu frá stjórn Félags ferðaþjónustubænda. Þar segir að horft sé til ferðaþjónustunnar við endurreisn Íslands og víða sé hún að verða einn af hornsteinum byggðar á landsbyggðinni. „Það er því afdráttarlaus krafa okkar að menn sýni þann vilja í verki með því að láta einskis ófreistað að koma á vegasambandi um hringveginn án tafar, nú þegar í hönd fer hábjargræðistíminn í ferðaþjónustunni. Slíkt er ekki aðeins mikilvægt fyrir þá sem næst búa, heldur ekki síður fyrir orðspor Íslands sem trúverðugs áfangastaðar ferðamann til framtíðar."
Tengdar fréttir Neyðarkall frá ferðaþjónustunni í Skaftárhreppi Ferðaþjónustuaðilar í Skaftárhreppi hafa sent Ögmundi Jónssyni innanríkisráðherra bréf þar sem þeir lýsa yfir miklum áhyggjum af rofi á þjóðvegi 1 við Múlakvísl. Bréfið ber yfirskriftina Neyðarkall frá ferðaþjónustuaðilum í Skaftárhreppi. 11. júlí 2011 07:49 Flytja vinnuvélar og efni til brúargerðar yfir Múlakvísl Vegagerðin er þegar byrjuð að flytja vinnuvélar og efni til brúargerðar yfir Múlakvísl eftir að brúnna þar tók af í hamfaraflóði um helgina og þjóðvegur eitt lokaðist. Að minnsta kosti einn stór og upphækkaður jeppi fór fram og til baka yfir kvíslina í gær og í ráði er að 40 manna herflutningarúta á vegum einkaaðila selflytji fólk yfir hana á meðan á brúarsmíðinni stendur. 11. júlí 2011 07:07 Kalla starfsmenn úr sumarleyfi til vinnu Vegagerðin hefur kallað hátt í tuttugu manns úr sumarfríi til að vinna að smíði nýrrar brúar yfir Múlakvísl. Engin fljótvirkari lausn er til við þessar aðstæður en að reisa nýja brú og það tekur um tvær til þrjár vikur, segir Hreinn Haraldsson vegamálastjóri. 11. júlí 2011 05:00 Mest lesið Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent Kornabarn reyndist á lífi í líkhúsi Erlent „Ef það gerist aftur mun þetta versna til muna!“ Erlent Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Innlent Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Innlent Ætla aftur að mála regnbogafánann Innlent Sneri sér við, greip í spaðann á Kristrúnu og gekk út Innlent Sníkjudýrsaðferðin komin til Íslands: Hvers vegna var efnunum komið fyrir í sjókistu? Innlent Rússneska herskipið aftur innan lögsögunnar Innlent Skemmdarvargar máluðu yfir regnbogafánann Innlent Fleiri fréttir Ætla aftur að mála regnbogafánann Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Rússneska herskipið aftur innan lögsögunnar Jón Ingvar vildi níutíu milljónir en fær ekki krónu Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Ríkisútvarpið braut ekki gegn siðareglum Trump, hóteldeilur og VestFest í kvöldfréttum Evrópusambandið sé verkfæri til að ná stöðugleika Stjórnandi drónans taldi sér ógnað og byssumaðurinn dæmdur Aukin framlög til varnarmála og öflugur stuðningur við Úkraínu á leiðtogafundi NATO Talið að tveir hafi staðið að meintum hatursglæp Gæsluvarðhald framlengt í Straumsvíkurmálinu Lögreglan leitar þessara manna Ísland skari fram úr ESB á flestum mælikvörðum Rannsaka málið sem hatursglæp Sneri sér við, greip í spaðann á Kristrúnu og gekk út Eldsvoði á Siglufirði nam þriðjungi bættra tjóna Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Fara áfram fram á varðhald yfir öllum níu Fær mál vegna sáðláts í andlit ekki tekið upp á ný Raforkueftirlitið fylgist með að lægri raforkukostnaður skili sér til neytenda Spenna á ráðstefnu NATO, raforkukostnaður og biskup um regnbogafánann „Líkist meira fána Grænhöfðaeyja heldur en þeim íslenska“ Lokuð akrein á Suðurlandsvegi og kvikmyndatökur á Krýsuvíkurleið Ummæli Trump um Grænland þurfi ekki að koma á óvart Skemmdarvargar máluðu yfir regnbogafánann Bjóða 250 þúsund krónur fyrir staðsetningu hvalveiðiskipanna Sníkjudýrsaðferðin komin til Íslands: Hvers vegna var efnunum komið fyrir í sjókistu? Hættuástand skapist eftir fráhvarf 3G „Hugsið ykkur hvað þetta er nöturleg afmælisgjöf“ Sjá meira
Neyðarkall frá ferðaþjónustunni í Skaftárhreppi Ferðaþjónustuaðilar í Skaftárhreppi hafa sent Ögmundi Jónssyni innanríkisráðherra bréf þar sem þeir lýsa yfir miklum áhyggjum af rofi á þjóðvegi 1 við Múlakvísl. Bréfið ber yfirskriftina Neyðarkall frá ferðaþjónustuaðilum í Skaftárhreppi. 11. júlí 2011 07:49
Flytja vinnuvélar og efni til brúargerðar yfir Múlakvísl Vegagerðin er þegar byrjuð að flytja vinnuvélar og efni til brúargerðar yfir Múlakvísl eftir að brúnna þar tók af í hamfaraflóði um helgina og þjóðvegur eitt lokaðist. Að minnsta kosti einn stór og upphækkaður jeppi fór fram og til baka yfir kvíslina í gær og í ráði er að 40 manna herflutningarúta á vegum einkaaðila selflytji fólk yfir hana á meðan á brúarsmíðinni stendur. 11. júlí 2011 07:07
Kalla starfsmenn úr sumarleyfi til vinnu Vegagerðin hefur kallað hátt í tuttugu manns úr sumarfríi til að vinna að smíði nýrrar brúar yfir Múlakvísl. Engin fljótvirkari lausn er til við þessar aðstæður en að reisa nýja brú og það tekur um tvær til þrjár vikur, segir Hreinn Haraldsson vegamálastjóri. 11. júlí 2011 05:00