Stal hundruðum lítra af díselolíu 20. júní 2011 13:06 Þorlákshöfn Mynd/Einar Elíasson
Aðfaranótt fimmtudagsins 16. júní síðastliðinn voru unnin skemmdarverk á stórri hjólaskóflu í sandnámu í landi Hrauns í Ölfusi. Allar rúður hjólaskóflunnar voru brotnar og reynt hafði verið að gangsetja hana. Jafnframt var útvarpstæki úr vinnuvélinni stolið. Ljóst er að tjónið er mikið í krónum talið. Sömu nótt var nokkrum hundraðum lítra af dísilolíu stolið af tveimur vörubifeiðum Jarðefnaiðnaðar í Þorlákshöfn. Vörubifreiðarnar stóðu á athafnasvæði fyrirtækisins við Nesbraut í Þorlákshöfn. Um hvítasunnuhelgina var verðmætu sláttuorfi stolið úr læstum verkfærakassa sveitarfélagsins Árborgar í Nauthólum á Selfossi. Sláttuorfið er af gerðinni Husqvarna 235R appelsínugult að lit. Þeir sem veitt geta upplýsingar um þessi mál eru beðnir að hafa samband við lögregluna á Selfossi í síma 480 1010. Um hádegi í gær, sunnudag, kom upp eldur í kjarri við Þjónustumiðstöðina í Þingvallaþjóðgarðinum, Eldurinn mun hafa kviknað út frá grillkolum. Starfsmenn þjóðgarðsins réðu ekki við eldinn og kölluðu sér til aðstoðar slökkvilið frá Brunavörnum Árnessýslu sem réðu niðurlögum eldsins. Fyrr í vikunni var slökkvilið sent að Reykjanesi í Grímsnesi vegna sinuelds. Líkur eru á að hann hafi kviknað út frá glóð úr reykjarpípu eftir að maður hafði slegið úr henni yfir spítnabraki þar sem undir leyndist sina. Af þessum tilefnum er rétt að brýna fyrir fólki að fara gætilega með eld og grillkol úti í náttúrunni. Í vikunni hafa 28 ökumenn verið kærðir fyrir hraðakstur í umdæmi lögreglunnar á Selfossi. Einn þeirra mældist á 154 km hraða á Hellisheiði um kl. 21 í gærkvöldi þegar talsverð umferð var þar eða um það bil 100 ökutæki á 10 mínútum. Flestir sem voru kærðir óku um Suðurlandsveg aðrir voru á Biskupstungnabraut, Laugarvatnsvegi, Þingvallavegi og Þrengslavegi. Tveir voru kærðir fyrir ölvunarakstur um helgina.
Mest lesið Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Innlent Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Innlent „Botninum hefur verið náð“ Innlent Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Erlent „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Erlent Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Innlent Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Fleiri fréttir Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Boða fjölgun flugferða á sama tíma og bátsferðir voru felldar niður Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Hnífstunga í heimahúsi í Árbæ Kvöddu þjóðargersemi með sögum og söng Fróaði sér úti og var gripinn með teiknað barnaníðsefni Eldgos enn líklegasta sviðsmyndin Meirihluti oddvita í glænýju hlutverki Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Lögreglan á Austurlandi kom að handtöku fimmtíu Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ „Botninum hefur verið náð“ Segja borgaryfirvöld hafa brugðist íbúum algjörlega Húsnæðispakki 2 kynntur og ófremdarástand hjá Herjólfi Boða allt að 1.400 íbúðir á lóðum ríkisins og í húsum þess „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Bein útsending: Kynna húsnæðispakka 2 Grunar sterklega að hinn látni sé ferðamaðurinn sem leitað var að Krefjast aðgerða: Nemendurnir þurfi að fara um einn hættulegasta veg landsins Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Bein útsending: Húsnæðismál í aðdraganda kosninga Sumarbúðir fatlaðra barna í húsi sem sé úr sér gengið Vongóður um að fundur með Apple skili árangri Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sjá meira