ASÍ samþykkir kjarasamningana 21. júní 2011 16:36 Gylfi Arnbjörnsson, forseti Alþýðusambandsins.
Samninganefnd ASÍ hefur ákveðið að staðfesta gildistöku þeirra kjarasamninga sem undirritaðir voru þann fimmta maí síðastliðinn og hafa Samtök atvinnulífsins í dag einnig staðfest gildistöku samninganna. Samningarnir munu því gilda til 31.1 2014 með umsömdum endurskoðunarákvæðum. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Alþýðusambandinu en þar segir orðrétt:Markmið kjarasamninganna er að leggja grunn að sátt á vinnumarkaði og samstilltu átaki Alþýðusambandsins, Samtaka atvinnulífsins og ríkisvaldsins við endurreisn efnahags- og atvinnulífsins til að um að auka hagvöxt, skapa störf, auka jafnvægi í efnahags- og atvinnulífi milli einstakra greina, tryggja lága verðbólgu og aukinn kaupmátt. Það er sameiginlegt markmið stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins að vinna bug á atvinnuleysi og skapa fjölbreytt og vel launuð störf hér á landi. Til þess að ná því markmiði þarf að örva fjárfestingu og skapa hvata til nýsköpunar í atvinnulífi.Við blasir að fjárfesting hefur verið of lítil á undanförnum árum og aðgerðir til að örva hagvöxt og skapa störf þurfa að beinast að því að auka arðbæra fjárfestingu hér á landi. Á síðasta ári var fjárfesting undir 200 milljörðum króna eða 13% af landsframleiðslu og hefur þetta hlutfall aldrei verið lægra. Það er markmið stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins að þetta hlutfall fari stighækkandi og verði ekki lægra en 20% í lok samningstímans en það jafngildir því að fjárfesting verði ekki lægri en 350 ma.kr. á ári.Það er ljóst að allir þurfa að leggjast á eitt ef þessi metnaðarfullu markmið eiga að nást. Það veldur því áhyggjum að þegar virðist ákveðið bakslag komið í fjárfestingaráformin:Innanríkisráðherra leggst gegn því að mikilvægum samgöngubótum verði flýtt þannig að hægt verði að fara í tug milljarða króna samgöngubætur á SV-landi á komandi misserum og árum.Tafir eru á því að ríkisstjórnin leggi fram efnahagsáætlun til næstu ára og hagsvaxtar- og fjárfestingaráætlun sem ætlað var að leggja grunn að nýrri sókn í atvinnumálum.Óþolandi tafir hafa verið á úrlausnum á skuldavanda heimila og fyrirtækja sem koma í veg fyrir að hægt sé að taka ákvarðanir um fjárfestingar.Atvinnulífið hefur haldið að sér höndunum og nýtir sér ekki tækifæri til fjárfestinga m.a. í byggingariðnaði.Óvissa og hringlandaháttur varðandi kvótafrumvörp ríkisstjórnarinnar hefur dregið úr hvata til fjárfestinga í uppbyggingu og endurnýjun í sjávarútvegi.Samninganefnd ASÍ leggur mikla áherslu á að þessum hindrunum verði rutt úr vegi og mun beita sér gagnvart stjórnvöldum og atvinnulífi til að áform um fjárfestingar og aukinn hagvöxt nái fram að ganga.
Mest lesið Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Innlent „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Innlent Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Innlent Þurfti að lenda flugvél eftir að kennarinn stökk út og hrapaði til bana Erlent Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Innlent Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Innlent Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Innlent Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Innlent Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Innlent Fleiri fréttir Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Skemmdarvargarnir enn ófundnir Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Ætla aftur að mála regnbogafánann Sjá meira