Lögreglan skrifaði skýrslu eftir að faðirinn fór að kanna málið Lóa Pind Aldísardóttir skrifar 21. júní 2011 18:40
Skýrsla lögreglu um andlát Sigrúnar Mjallar Jóhannesdóttur var skrifuð fjórum og hálfum mánuði eftir að rannsókn lauk og ekki fyrr en að faðir hennar fór að grafast um málið. Lektor í refsirétti furðar sig á vinnubrögðum lögreglu. Við sögðum frá því nýverið að lektor í refsirétti tekur undir með föður Sigrúnar Mjallar um að rannsókn lögreglu á láti hennar hafi verið ábótavant en hún lést af banvænum eiturlyfjaskammti fyrir rúmu ári. Fullt tilefni hafi verið til að rannsaka tildrög andlátsins enda leiki þar grunur á fjölda brota. Faðir Sigrúnar óskaði í nóvember eftir afhendingu allra gagna lögreglu um andlát hennar. Lektornum þótti pakkinn rýr - og sagðist hafa fengist við mál - þar sem manni var gefið að sök að fara yfir á rauðu ljósi - sá pakki hafi verið þykkari en þessi. Gögnin fékk hann í mars - en tæknideildarskýrslan barst ekki fyrr en nú í júní. Dagsetning skýrslunnar vekur athygli. Sigrún Mjöll fannst látin 3. júní á síðasta ári - tæknideildarskýrslan er hins vegar skrifuð 14. apríl á þessu ári. „Nú hefur lengi legið fyrir að lögregla sem reynir nú alltaf að vinna málin sem best, er algjörlega undirmönnuð og að hún sé að fara að gera skýrslur í máli sem hefur verið lokað fjórum mánuðum áður -ja, það finnst mér nú ótrúlegt, ef lögreglan hefur allt í einu tíma til að gera slíka skýrslu. Ég neita að trúa því, rannsókn málsins hefur verið lýst lokið," segir Jón Þór Ólason, lögmaður og lektor í refsirétti. Þá finnst honum sérkennilegt að aðstandendur fái ekki afhentar undirritaðar skýrslur. „Það er ekki verið að senda hinar eiginlegu lögregluskýrslur ef þær yrðu lagðar fyrir dóm þá hefðu þær ansi lítið vægi," segir Jón Þór.
Mest lesið „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Innlent Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Innlent Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Innlent Þurfti að lenda flugvél eftir að kennarinn stökk út og hrapaði til bana Erlent Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Innlent Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Innlent Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Innlent Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Innlent Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Innlent Fleiri fréttir Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Skemmdarvargarnir enn ófundnir Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Ætla aftur að mála regnbogafánann Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Rússneska herskipið aftur innan lögsögunnar Jón Ingvar vildi níutíu milljónir en fær ekki krónu Sjá meira