Kæru Eimskips vísað frá 22. júní 2011 16:38 Áfrýjunarnefnd samkeppnismála sagði rökstuðning Samkeppnisnefndar fullnægjandi.
Áfrýjunarnefnd samkeppnismála féllst í dag á kröfu Samkeppniseftirlitsins um frávísun á kæru Eimskips á þeim grundvelli að hún hafi borist eftir að fjögurra vikna kærufrestur var liðinn. Þann 1. mars síðastliðinn birti Samkeppniseftirlitið Eimskipi höfnun sína á því að taka kvörtun fyrirtækisins til efnislegrar meðferðar en Eimskip krafðist frekari rökstuðnings á höfnuninni þar sem fyrirtækinu þótti skýringar Samkeppniseftirlitsins ófullnægjandi. Svarbréf frá Samkeppniseftirlitinu barst ekki fyrr en degi eftir að kærufrestur var útrunninn og kom þar fram það mat eftirlitsins að rökstuðningurinn hefði verið fullnægjandi, og var engu við hann bætt. Eimskip kærði stuttu síðar ákvörðunina og hélt því fram að kærufrest bæri að framlengja sökum þess hve seint þeim hefði borist svar við kröfu sinni um frekari rökstuðning. Þetta féllst Áfrýjunarnefnd samkeppnismála ekki á og sagði í úrskurði sínum að ákvæði um slíka framlengingu kærufrests geti eingöngu komið til skoðunar ef upphafleg ákvörðun hafi verið lítið eða ekkert rökstudd. Ákvörðun Samkeppniseftirlitsins hafi hins vegar verið nægilega rökstudd og hafi þar af leiðandi ekki torvelt Eimskipi að kæra hana þegar hún birtist. Sá vilji Eimskips að efna til frekari rökræðna um málið gæti ekki haft áhrif á kærufrestinn.
Mest lesið „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Innlent Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Innlent Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Innlent Þurfti að lenda flugvél eftir að kennarinn stökk út og hrapaði til bana Erlent Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Innlent Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Innlent Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Innlent Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Innlent Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Innlent Fleiri fréttir Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Skemmdarvargarnir enn ófundnir Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Ætla aftur að mála regnbogafánann Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Rússneska herskipið aftur innan lögsögunnar Jón Ingvar vildi níutíu milljónir en fær ekki krónu Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Ríkisútvarpið braut ekki gegn siðareglum Trump, hóteldeilur og VestFest í kvöldfréttum Sjá meira