Ólafur Ragnar hrósar hinni umdeildu Söruh Palin 23. júní 2011 12:04
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, kom blaðamanni Alaska Dispatch nokkuð á óvart á dögunum þegar hann hrósaði í hástert Söruh Palin, fyrrverandi ríkisstjóra Alaska og varaforsetaframbjóðenda í Bandaríkjunum. Sem kunnugt er var Ólafur Ragnar eini þjóðarleiðtoginn sem Palin hafði hitt þegar hún bauð sig fram til varaforseta. „Þegar við hittumst var hún nýorðinn ríkisstjóri og við ræddum ekkert um landsmálin," segir Ólafur í viðtali við Alaska Dispatch, en hann er staddur á fjölþjóðlegri ráðstefnu í Alaska um nýjar siglingaleiðir vegna bráðnunar íss á Norðurslóðum. Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson flytur í dag, mánudaginn 20. júní, ræðu á setningarathöfn fjölþjóðlegrar ráðstefnu sem haldin er í Alaska. Viðfangsefni hennar er að ræða nauðsyn framkvæmda og sérstakra framtíðaráætlana með tilliti til nýrra siglingaleiða sem bráðnun íss á Norðurslóðum mun innan tíðar hafa í för með sér. Ólafur segir að þau Palin hafi rætt um möguleika Alaska á sviði jarðvarmaorku. „Ég skynjaði hjá henni hæfileika á sviði stjórnmála, pólitíska hæfni sem fólk annað hvort hefur eða ekki. Þetta er eins og tónlistarhæfileikar. Hvort sem fólk er sammála henni eða ekki þá er það skýrt merki um hæfileika henna að á aðeins nokkrum árum hefur hún farið frá því að vera embættismaður í Alaska til þess að vera eitt áhrifamesta afl stjórnmálanna," segir Ólafur Ragnar. Blaðamaður tekur fram í greininni að aðdáun Ólafs Ragnars á Palin kunni að vekja sérstaka kátínu meðal vinstri sinnaðra stjórnmálamanna í Evrópu, en Palin er eins langt til hægri í hinu pólitíska litrófi og hægt er. Spurður hvað honum finnist um stjórnmálaskoðanir Palin segir Ólafur kíminn við blaðamann Alaska Dispatch: „Við skulum ekkert vera að ræða það neitt," og beinir umræðuefninu snarlega að loftslagsbreytingum og grænni orku.Sjá greinina í Alaska Dispatch.
Mest lesið „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Innlent Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Innlent Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Innlent Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Innlent Þurfti að lenda flugvél eftir að kennarinn stökk út og hrapaði til bana Erlent Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Innlent Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Innlent Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Innlent Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Innlent Fleiri fréttir Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Skemmdarvargarnir enn ófundnir Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Ætla aftur að mála regnbogafánann Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Rússneska herskipið aftur innan lögsögunnar Jón Ingvar vildi níutíu milljónir en fær ekki krónu Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Ríkisútvarpið braut ekki gegn siðareglum Trump, hóteldeilur og VestFest í kvöldfréttum Evrópusambandið sé verkfæri til að ná stöðugleika Stjórnandi drónans taldi sér ógnað og byssumaðurinn dæmdur Sjá meira