Fasteignaverð svipað í krónum og í ársbyrjun 2007 Heimir Már Pétursson skrifar 23. júní 2011 19:15
Fasteignaverð er almennt á uppleið og er verð fasteigna nú í krónum talið svipað og það var í upphafi ársins 2007. Heildarmat íbúðarhúsnæðis á landinu hækkar um 9 prósent á næsta ári, en hækkunin er töluvert mismunandi milli hverfa á höfuðborgarsvæðinu og milli landshluta. Tæplega 125 þúsund íbúðir eru skráðar á Íslandi og hækkar heildarfasteignamat þeirra á næsta ári úr 2.600 milljörðum í 2.850 milljarða eða um níu prósent. Á höfuðborgarsvæðinu er misjafnt eftir hverfum hvað fasteignamatið hækkar mikið, en mest er hækkunin hér í vesturbæ Reykjavíkur. Nánar tiltekið vestan Bræðraborgarstígs þar sem fasteignamatið hækkar um 14,9 prósent á næsta ári, í Hlíðunum um 9,4 prósent, 3,6 prósent í Bryggjuhverfi, í Grafarvogi um 7,9 prósent, 3,9 prósent í neðra Breiðholti, 4,5 prósent í Úlfarsárdal , um 13,9 prósent í Ártúnsholti og Höfðum, 10,4 prósent í vestubæ Kópavogs, um 4,2 prósent í Kórahverfi, lækkar um 0,2 prósent í Akrahverfi í Garðabæ en hækkar um 7,9 prósent í Hafnarfirði. „Fasteignamarkaðurinn hefur lifnað mikið við og það styrkir mjög mikið grunn fasteignamatsins. Og það er miklu auðveldara að draga upp mynd af því hvert verðið stefnir eftir hrunið. Það voru fyrstu þrjá mánuði ársins 2009 gerðir 800 kaupsamningar á landinu öllu, þeir voru þúsund í fyrra og nú eru þeir orðnir þrettán hundruð. Þannig að þetta er svona stigvaxandi," segir Þorsteinn Arnalds framkvæmdastjóri hjá Þjóðskrá Íslands. Staðsetning eigna skiptir máli þegar kemur að fasteignamati. Þannig myndi íbúð sem metin er á 20 milljónir í fjölbýli í Grafarvogi norður, kosta 28,6 milljónir hér í suðurhluta Þingholta, en 17,8 milljónir á Völlunum í Hafnarfirði. Meðaltalshækkun á mati allra fasteigna, íbúðarhúsnæðis sem og atvinnuhúsnæðis á landinu er 6,8 prósent. Hækkunin er hins vegar mismunandi eftir landshlutum. Á höfuðborgarsvæðinu hækkar fasteignamat að meðaltali um 6,3%, um 4,3 prósent á Suðurnesjum , á Vesturlandi um 9,6%, á Vestfjörðum um 9,9%, um 11,9% á Norðurland vestra og 9,3 prósent á Norðurland eystra. Minnst er hækkunin á Austurlandi eða 2,8% en á Suðurlandi er meðaltalashækkunin 9,9%. Kaupsamningar á fyrsta ársfjórðungi þessa árs voru þrettán hundruð, en þeir voru um átta hundruð á fyrsta ársfjórðungi 2009 og því er fasteignamarkaðurinn að hressast. „Við erum auðvitað að tala um krónur sem hafa rýrnað töluvert mikið. En við erum kannski stödd, ef við tölum um íslenskar krónur, á sama verðlagi og í byrjun árs 2007," segir Þorsteinn Arnalds.
Mest lesið „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Innlent Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Innlent Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Innlent Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Innlent Þurfti að lenda flugvél eftir að kennarinn stökk út og hrapaði til bana Erlent Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Innlent Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Innlent Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Innlent Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Innlent Fleiri fréttir Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Skemmdarvargarnir enn ófundnir Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Ætla aftur að mála regnbogafánann Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Rússneska herskipið aftur innan lögsögunnar Jón Ingvar vildi níutíu milljónir en fær ekki krónu Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Ríkisútvarpið braut ekki gegn siðareglum Trump, hóteldeilur og VestFest í kvöldfréttum Evrópusambandið sé verkfæri til að ná stöðugleika Stjórnandi drónans taldi sér ógnað og byssumaðurinn dæmdur Sjá meira