Ekkert hræðir ferðamenn meira en að komast ekki aftur heim Jónas Margeir Ingólfsson skrifar 27. júní 2011 12:07 Mynd úr safni
Mörg fyrirtæki í ferðaþjónustunni hafa orðið fyrir fjárhagslegu tjóni vegna yfirvinnubanns flugmanna Icelandair en félagið hefur nú aflýst fimmtán flugum. Framkvæmdastjóri samtaka ferðaþjónustunnar segir ekkert hræða ferðamenn meira en tilhugsunin að komast ekki aftur heim. Viðræðum verður haldið áfram í Karphúsinu í dag. Ríkissáttasemjari hefur boðað til sáttarfundar með flugmönnum Icelandair og samningamönnum félagsins, klukkan hálf tvö í dag, eftir árangurslausan samningafund á laugardag. Þrjú flug, sem fara áttu héðan til Gautaborgar, Kaupmannahafnar og Parísar í nótt, voru felld niður vegna yfirvinnubanns flugmanna. Þá hefur flug félagsins til og frá Seattle í dag verið fellt niður. Flugstjóri vélarinnar flaug annarri vél frá Evrópu í gærkvöld en lenti á eftir áætlun vegna flugumferðar. Hann átti að lenda skömmu fyrir miðnætti en lenti sex mínútur yfir. Samkvæmt samningum má flugstjóri ekki fljúga áætlunarflug tvisvar sama dag og því munaði ekki nema sex mínútum að hann fengi að fljúga til Seattle í dag. Enginn kemst í hans stað vegna yfirvinnubannsins. Erna Hauksdóttir framkvæmdastjóri samtaka ferðaþjónustunnar segir aðgerðir flugmanna hafa mikil áhrif á ferðaþjónustuna. „Við erum að fá fréttir héðan og þaðan af hópum sem eru hættir við að koma til Íslands," segir hún og tekur fram að aðgerðirnar fæli ferðamenn frá Íslandi. „Það er farið að hægja á bókunum. Það er ekkert sem hræðir fólk jafn mikið eins og að komast ekki aftur heim," segir Erna. Þá segir hún ferðamenn vel geta farið til annarra landa ef flug þeirra til Íslands fellur niður. Ferðaþjónustan megi ekki við því. „Það er nóg af öðrum stöðum til að fara til, við erum í gríðarlegri samkeppni við önnur lönd. Það er auðveldasti hlutur í heimi fyrir þessa hópa að hætta við að koma hingað og fara eitthvað annað, segir Erna að lokum.
Mest lesið Réðust á fleiri olíuflutningaskip Erlent Töluðu saman í klukkutíma Erlent Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Innlent „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Innlent Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi Innlent „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Innlent „Það kostar peninga að afla peninga“ Innlent Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Erlent Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Innlent Fleiri fréttir Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi „Það kostar peninga að afla peninga“ Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Íkveikja í Miðborginni Rukka meira fyrir aksturinn og sérstaklega fyrir veginn Þjóðin eigi náttúrupassa skilið „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Ávarp Höllu: „Slíkur missir snertir okkur öll“ „Maður á ekki að fara í felur með það sem maður er að gera“ Ætlaður hnífur sé tannbursti sem hafi róandi áhrif „Held að ráðherra hafi slegið góðan tón í dag“ Menntavísindasvið greinir PISA-niðurstöður PISA: „Þetta er ákveðinn sorgardagur“ Hafi sest upp í bílinn fyrir mistök Svona var bein útsending Vísis frá setningu Alþingis „Við skulum bara spyrja að leikslokum“ Þingmálaskrá vetrarins: Sanngirnisbætur, sveitarstjórnarlög og samfélagsmiðlabann Viðbrögð við sláandi PISA-könnun Ísland sé með rauða spjaldið í námsárangri barna „Ef þetta á að vera grín er þetta lélegt grín“ Aðalmeðferð hafin í Höfðatorgsmáli: Myndskeið sýnir fórnarlambið kastast upp í loft eftir ákeyrslu Bein útsending: Niðurstöður PISA-könnunar kynntar „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Grænlensk skipsflauta vakti borgarbúa af værum blundi Kynntu þingmálaskrá vetrarins Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Ógnandi, vopnaður hnífi og í annarlegu ástandi Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sjá meira
Aðalmeðferð hafin í Höfðatorgsmáli: Myndskeið sýnir fórnarlambið kastast upp í loft eftir ákeyrslu