Þingmaður Framsóknar vill endurskoðun á lögunum 12. júní 2011 13:45 Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknar.
Þingmenn fengu ekki réttar upplýsingar við samþykkt á lögum um útreikninga lána í desember síðastliðnum segir Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknar. Hún telur réttast að lögin verði tekin aftur upp á Alþingi. Eygló hefur gert miklar athugsemdir við samþykkt laganna og furðar sig á því hve óskýr löggjöfin er. Eftir að lögin tóku gildi um áramót fór hún fram á að ráðuneytið myndi senda frá sér skýr dæmi um það hvernig ætti að endurreikna lánin, en því miður hafi það ekki verið reyndin. "Eins og ég skildi það þá átti ekki að umbuna fyrir þennan ólögmæta gjörning, þannig að það átti ekki að gera ráð fyrir vaxtavöxtum, né dráttarvöxtum, né nokkru vanskilaálagi á greiðslur sem lántakar hefðu aldrei möguleika á að borga." Þetta hefur hins vegar ekki gengið eftir. Mismunandi aðferðarfræðum sé nú beitt við endurútreikna og að það sé óskýrleiki laganna sem bjóði upp á þá stöðu. Þeir sem brutu lögin til að byrja með ákveði nú hvernig útreikningum lánanna sé háttað. Hún segir langeðlilegast að lögin verði tekin aftur upp á Alþingi og vilji löggjafans skýrður. Að mati Eyglóar virðist efnahags- og viðskiptaráðherra vera sáttur við hvernig lánveitendur endurreikni lánin og að það sé algjörlega óásættanlegt. Aðspurð hvað standi í veg fyrir því að lögin verði endurskoðuð á Alþingi segir Eygló. "Það getur verið erfitt að viðurkenna að maður hafi gert mistök, en menn þurfa að kyngja því og horfast í augu við það að þau voru kosin til að gæta almannahagsmuna, ekki sérhagsmuna."
Mest lesið Alelda bíll á Emstruleið Innlent Skotárás á Times Square Erlent Rannsaka ásakanir á hendur ríkissáttasemjara Innlent Lést eftir skyndileg veikindi við klettastökk Innlent Rekinn eftir tvo mánuði hjá skattinum og samdægurs tilnefndur sendiherra á Íslandi Erlent Gefur ekkert landsvæði eftir Erlent „Úkraínumenn þurfa örugglega að gefa eftir land“ Erlent Segjast ekkert hafa vitað um hætturnar í Reynisfjöru Innlent Samdráttur og vítahringur í boði stjórnvalda Innlent Amma ræsti neyðarhnapp við enn eina árás dóttur sinnar Innlent Fleiri fréttir Alelda bíll á Emstruleið Vond niðurstaða Úkraínu, ásakanir á hendur sáttasemjara og síðasta hlaupið Mikill meirihluti hefur áhyggjur af stríðsátökum Rannsaka ásakanir á hendur ríkissáttasemjara Samdráttur og vítahringur í boði stjórnvalda Ekki stafi lengur tilvistarógn af Hamasliðum Lést eftir skyndileg veikindi við klettastökk Segjast ekkert hafa vitað um hætturnar í Reynisfjöru Féll fjóra metra í vinnuslysi í Kópavogi Ómeðvitaðir ferðamenn í Reynisfjöru, síbökuð hjón og tölvuspil fram á nótt Enginn árangur af „veiða og sleppa“ aðferðinni Flokkarnir dæla milljónum í áróður á Meta Hræðast að fleiri en einn fari í sjóinn Átökin „hvorki vegna né þrátt fyrir“ áfengissöluna Heitavatnslaust í Laugardal Lést við flúðasiglingar í Vestari-Jökulsá Langflestir telja sig búa á góðum stað fyrir samkynhneigða Áttu ekki von á neinu veseni og viðbúnaður eftir því Amma ræsti neyðarhnapp við enn eina árás dóttur sinnar Maður féll í Vestari-Jökulsá Fangar í einangrun vegna sama máls noti ekki sama útisvæði Hundarnir þegar aflífaðir en ákvörðun um lógun ólögmæt Samskipti fanga í einangrun, tapsárir Danir og drottning Gleðigöngunnar Allir fundir við ESB „fyrst og fremst“ hagsmunagæsla Telja að lífvörður myndi aðeins gera ferðamenn kærulausari Esjan snjólaus og það óvenju snemma Íslendingurinn í Grikklandi laus úr haldi Dvalarleyfi langtum dýrara í hinum Norðurlöndunum Lögreglurannsókn á banaslysi í Brúará „svo til“ lokið Nauðsynlegt að fólk fái úrræði til að vernda sig frá djúpfölsunum Sjá meira