Máli Sigurðar ekki vísað frá - aðalmeðferðin fer líklega fram í haust 14. júní 2011 19:18 Sigurði Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings.
Hæstiréttur Íslands staðfesti í dag úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur, sem hafnaði að fella niður mál Kaupþings á hendur Sigurði Einarssyni, fyrrum stjórnarformanni bankans. Lögmaður bankans býst við að aðalmeðferð í málinu fari fram í september næstkomandi. Þegar héraðsdómur kvað upp úrskurð sinn mætti lögmaður Kaupþings hf. ekki á þingið og krafðist Sigurður þá að málið yrði fellt niður og honum úrskurðaður málskostnaður. Í úrskurði héraðsdóms sagði að réttaráhrif sem bundin væru við ákvörðun um nýtt þinghald á dómþingi yrðu ekki virk nema þeirrar ákvörðunar væri getið í þingbók. „Þar sem það hefði ekki verið gert yrðu útivistaráhrif samkvæmt 105. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála ekki bundin við fjarveru lögmanns Sigurðar úr þinghaldinu. Með hliðsjón af f. lið 1. mgr. 97. gr. laga nr. 91/1991 hefði fjarvist úr þinghaldi jafngilt lögmætum forföllum við fyrirtöku málsins, sagði í úrskurðinum. Lögmaður Kaupþings hf., hélt því fram fyrir Hæstarétti að eftir munnlegan flutning málsins um frávísunarkröfu Sigurðar hefði dómari skýrt frá því að hann hygðist kveða upp úrskurð tiltekinn dag á tilteknum tíma. Tímasetningunni hefði síðar verið breytt án þess að hann hefði haft um það upplýsingar. „Að þessu gættu en að öðru leyti með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar var hann staðfestur,“ segir á vef Hæstaréttar. Guðni Á. Haraldsson, lögmaður Kaupþings hf., segir í samtali við Vísi að hann búist við því að aðalmeðferðin í málinu fari fram í september næstkomandi. Málið snýst um niðurfellingu á lánum sem Kaupþing veitti Sigurði upp á 549 milljónir króna. Héraðsdómur mun fjalla um hvort að gamla bankanum var heimilt að fella niður persónulega ábyrgð Sigurðar á lánunum.
Mest lesið Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Innlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Innlent Þurfti að lenda flugvél eftir að kennarinn stökk út og hrapaði til bana Erlent „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Innlent Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Innlent Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Innlent „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Innlent Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Innlent Fleiri fréttir Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Skemmdarvargarnir enn ófundnir Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Sjá meira