Ingibjörg Sólrún: Var einhver að tala um pólitík? 14. júní 2011 21:41 Ingibjörg Sólrún segir að Steingrímur og Ögmundur hafi opinberað vanþekkingu sína um landsdómsmálið.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra, segir að Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, og Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, hafi opinberað vanþekkingu sína um landsdómsmálið. Þetta segir hún í færslu sinni á Facebook í dag sem ber yfirskriftina: „Var einhver að tala um pólitík?“ Hún segir að það sé komið í ljós að þeir hafi ákveðið að beita ákæruvaldi gegn tilteknum einstaklingum án þess að hafa kynnt sér niðurstöðu Rannsóknarnefndar Alþingis. „Ögmundur segir í viðtali við Pressuna þann 6. júní að hann hafi greitt atkvæði með ,,tilllögum rannsóknarnefndar Alþingis sem vildi láta skoða mál oddvita ríkisstjórnarflokkanna í aðdraganda hrunsins." Í viðtali við DV 8. júní er hann við sama heygarðshornið og segir að meirihluti alþingis hafi fallist á tillögur rannsóknarnefndarinnar ,,um að kanna framgöngu oddvita ríkisstjórnarinnar í aðdraganda hrunsins." Þetta er rangt. Rannsóknarnefndin gerði engar slíkar tillögur. Steingrímur segir svo í vitali við Fréttablaðið 11. júní að Rannsóknarnefnd Alþingis ,,hafi komist að þeirri niðurstöðu að tólf manns hefðu gerst sekir um vanrækslu eða brot í starfi." Þetta er rangt. Rannsóknarnefndin komst að þeirri niðurstöðu að 3 ráðherrar, 3 bankastjórar í Seðlabankanum og forstöðumaður Fjármálaeftirlitsins hefðu gerst sekir um vanrækslu," segir Ingibjörg Sólrún. Hún segir að fólk geti haft á því mismunandi skoðanir hver sé ástæðan fyrir hruni íslenska fjármálakerfisins og hvaða einstaklingar eigi þar helst hlut að máli. „En þegar þingmenn og ráðherrar fara með ákæruvald yfir einstaklingum duga ekki persónulegar skoðanir þeirra. Það verður að gera til þeirra þá kröfu að þeir kunni a.m.k. skil á niðurstöðum þeirrar rannsóknar sem á að liggja ákærum til grundvallar. Á því er greinilega mikill misbrestur," segir Ingibjörg. Og hún endar færslu sína á Facebook í dag á orðunum: „Var einhver að tala um pólitík í tengslum við ,,landsdómsmálið"? Skyldi það vera hugsanlegt að einhverjir þingmenn hafi látið stjórnast af hyggindum sem í hag gátu komið - pólitískt?"
Mest lesið Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Innlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Innlent Þurfti að lenda flugvél eftir að kennarinn stökk út og hrapaði til bana Erlent „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Innlent Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Innlent Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Innlent „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Innlent Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Innlent Fleiri fréttir Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Skemmdarvargarnir enn ófundnir Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Sjá meira