Minningarfundur á Alþingi vegna Jóns forseta 15. júní 2011 08:48 Mynd/Anton Brink
Alþingi kemur saman í dag og er aðeins eitt mál á dagskrá, tillaga um prófessorsstöðu tengda nafni Jóns Sigurðssonar forseta. Um er að ræða minningarfund í tilefni af 200 ára fæðingarafmælis Jóns næstkomandi föstudag. Tillagan er lögð fram af forsætisnefnd Alþingis. Fyrri umræða um þingsályktunartillöguna fór fram þann 11. júní en síðari umræða og atkvæðagreiðsla fer fram á minningarfundinum í dag. Ásta R. Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, setur fundinn og flytur stutt ávarp. Einn ræðumaður frá hverjum þingflokki talar í umræðunni og að lokinni atkvæðagreiðslu flytur Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, stutt ávarp. Samkvæmt tillögunni er gert ráð fyrir að prófessorsstaðan verði stofnuð við Háskóla Íslands en starfsskyldur þess sem henni gegnir verði meðal annars við Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Vestfjörðum og í samstarfi við Háskólasetur Vestfjarða. Gert er ráð fyrir að staðan verði auglýst og skipað í hana á fimm ára fresti eftir almennum reglum um prófessora og heimilt verði að endurnýja skipunartímann einu sinni. Lagt er til að prófessorinn hafi rannsókna- og kennsluskyldu í sínu fagi. Eitt lykilverkefna hans verði að halda árlega ráðstefnur og námskeið í sumarháskóla á Hrafnseyri með innlendum og erlendum kennurum og fyrirlesurum. Við skipun í prófessorsembættið verði höfð hliðsjón af því hvernig áætlun umsækjenda um rannsóknarstarf og kennslu tengist lífi, starfi og arfleifð Jóns Sigurðssonar og efli þekkingu á sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar. Samkvæmt tillögunni er gert ráð fyrir að prófessorinn geti tekið til starfa frá og með næstu áramótum. Þingfundinum verður útvarpað og sjónvarpað. Hann hefst klukkan 11.
Mest lesið Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Innlent Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Erlent Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Innlent „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Innlent Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Erlent Fleiri fréttir Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Boða fjölgun flugferða á sama tíma og bátsferðir voru felldar niður Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Hnífstunga í heimahúsi í Árbæ Kvöddu þjóðargersemi með sögum og söng Fróaði sér úti og var gripinn með teiknað barnaníðsefni Eldgos enn líklegasta sviðsmyndin Meirihluti oddvita í glænýju hlutverki Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Lögreglan á Austurlandi kom að handtöku fimmtíu Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ „Botninum hefur verið náð“ Segja borgaryfirvöld hafa brugðist íbúum algjörlega Sjá meira