Innlent

Lýsa yfir stuðningi við konur í baráttu við kirkjuna

Pétur Kr. Hafstein, formaður rannsóknarnefndar, við hlið Karls Sigurbjörnssonar, biskups. Myndin er úr safni.
Pétur Kr. Hafstein, formaður rannsóknarnefndar, við hlið Karls Sigurbjörnssonar, biskups. Myndin er úr safni.
Kvenréttindafélag Íslands lýsir yfir stuðningi við þær konur sem leita nú réttar síns gagnvart þjóðkirkjunni. Þetta kemur fram í ályktun frá félaginu. Þar segir að það verði vart á milli séð hvort sé verra, kynbundið ofbeldi sálusorgarans eða harðsnúin þöggun innan kirkjunnar.

„Með hliðsjón af framvindu mála er ljóst að það hefur krafist mikils hugrekkis af þeim konum sem í hlut eiga og málsvörum þeirra, að knýja fram réttláta málsmeðferð,“ segir í tilkynningunni en stjórn Kvenréttindafélagsins hvetur yfirstjórn þjóðkirkjunnar að íhuga vandlega hver lokaskref málsins verða af hennar hálfu, þar sem það sé ljóst að þær málslyktir geta orðið fordæmisgefandi fyrir þær stofnanir sem taldar eru til grunnstoða samfélagsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×