Háskólaráð fagnar Aldarafmælissjóðnum 17. júní 2011 09:25 Prófessorsstaðan er sett á laggirnar í nafni Jóns Sigurðssonar
Háskólaráð Háskóla Íslands fagnar því að stjórnvöld hafi stofnað sérstakan Aldarafmælissjóð fyrir skólann og nýja prófessorsstöðu í nafni Jóns Sigurðssonar í tilefni 100 ára afmælis skólans. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Háskólaráði. Greint var frá því í gær að Ríkisstjórn Íslands og Alþingi hefðu samþykkt að heiðra Háskóla Íslands með 150 milljóna króna stofnframlagi í sérstakan Aldarafmælissjóð. Markmið sjóðsins er að efla rannsóknir og nýsköpun sem nýtast munu til uppbyggingar atvinnulífs og verðmætasköpunar í þágu íslensks samfélags og þjóðar, eins og segir í yfirlýsingu Ríkisstjórnarinnar og Alþingis. Þá stendur til að setja á fót starfshóp sem gera mun tillögu um framlög í Aldarafmælissjóðinn á árunum 2012-2020. Enn fremur var samþykkt á Alþingi í gær þingsályktunartillaga um stofnun prófessorsstöðu við Háskóla Íslands í nafni Jóns Sigurðssonar, en 200 ár eru frá fæðingu hans. Starfsskyldur prófessorsins verða meðal annars við Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Vestfjörðum og í samstarfi við Háskólasetur Vestfjarða. Háskólaráð Háskóla Íslands fagnaði á fundi sínum í dag þeirri velvild og viðurkenningu sem skólanum er sýnd á aldarafmælinu. „Gjafir Ríkisstjórnar Íslands og Alþingis eru ómetanlegt framlag til að auka þekkingu, vísindastarfsemi, nýsköpun og frumkvöðlahugsun. Það er gleðiefni að stjórnvöld og þingmenn allra flokka skuli vera samtaka um nauðsyn þess að hefja nýja sókn og vera reiðubúnir að fylgja henni eftir í verki með stuðningi við Háskóla Íslands," segir í ályktun háskólaráðs. Ennfremur segir í ályktuninni að „Aldarafmælissjóðurinn er dýrmætt framlag til að gera Háskóla Íslands kleift að hrinda í framkvæmd skýrri framtíðarstefnu sinni og metnaðarfullum vísindamarkmiðum og munu framlög úr honum grundvallast á ströngustu alþjóðlegum mælikvörðum um árangur og gæði."
Mest lesið Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Innlent Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Innlent Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Innlent Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Innlent Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Erlent Fleiri fréttir Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Boða fjölgun flugferða á sama tíma og bátsferðir voru felldar niður Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Hnífstunga í heimahúsi í Árbæ Kvöddu þjóðargersemi með sögum og söng Fróaði sér úti og var gripinn með teiknað barnaníðsefni Eldgos enn líklegasta sviðsmyndin Meirihluti oddvita í glænýju hlutverki Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Lögreglan á Austurlandi kom að handtöku fimmtíu Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ „Botninum hefur verið náð“ Sjá meira