Útför Ólafs Gauks á mánudag 17. júní 2011 10:56 Ólafur Gaukur var einn helsti brautryðjandi dægurtónlistar á Ísland
Útför Ólafs Gauks Þórhallssonar, tónlistarmanns, fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík, mánudaginn 20. júní 2011 klukkan 13:00. Ólafur Gaukur fæddist 11.ágúst 1930 en lést á hvítasunnudag, 12. júní, 2011. Dóttir Ólafs, Anna Mjöll, óskaði eftir því að tilkynning um útförina yrði birt. Foreldrar Ólafs Gauks voru Bergþóra Einarsdóttir frá Garðhúsum í Grindavík og Þórhallur Þorgilsson magister í rómönskum málum. Ólafur Gaukur var einn helsti brautryðjandi dægurtónlistar á Íslandi sem gítarleikari, lagahöfundur, hljómsveitarstjóri, útsetjari, textahöfundur, plötuútgefandi og kennari. Hann útskrifaðist úr kvikmyndatónlistarháskóla Dick Grove í Los Angeles árið 1984. Aðeins fimmtán ára gamall stofnaði Ólafur Gaukur sitt fyrsta tríó og á menntaskólaárum sínum hóf hann að leika með vinsælustu danshljómsveitum landsins, meðal annars KK sextett. Einnig stýrði hann eigin hljómsveitum og mun Sextett Ólafs Gauks og Svanhildur vera þeirra þekktust. Ólafur Gaukur stofnaði Gítarskóla Ólafs Gauks árið 1975 og rak hann til æviloka. Fyrir framlag sitt til íslenskrar tónlistar hlaut Ólafur Gaukur ýmsar viðurkenningar. Hann var útnefndur til verðlauna fyrir bestu tónlist í kvikmynd, fyrir myndina Benjamín Dúfu á Berlin Film Festival í Þýskalandi árið 2006. Heiðursverðlaun Íslensku tónlistarverðlaunanna hlaut hann árið 2006. Árið 2008 var hann sæmdur hinni Íslensku fálkaorðu, sama ár var hann kjörinn heiðursfélagi í Félagi tónskálda og textahöfunda og árið 2009 sæmdu gítarleikarar hann Gullnöglinni. Ólafur Gaukur lætur eftir sig uppkomin börn. Eftirlifandi eiginkona Ólafs Gauks er Svanhildur Jakobsdóttir.
Mest lesið Kölluð út á efsta forgangi þegar tveir féllu útbyrðis Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi Innlent Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Innlent Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ Innlent Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Innlent Hnífstunga í heimahúsi í Árbæ Innlent Fleiri fréttir Kölluð út á efsta forgangi þegar tveir féllu útbyrðis Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Boða fjölgun flugferða á sama tíma og bátsferðir voru felldar niður Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Hnífstunga í heimahúsi í Árbæ Kvöddu þjóðargersemi með sögum og söng Fróaði sér úti og var gripinn með teiknað barnaníðsefni Eldgos enn líklegasta sviðsmyndin Meirihluti oddvita í glænýju hlutverki Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Lögreglan á Austurlandi kom að handtöku fimmtíu Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ „Botninum hefur verið náð“ Segja borgaryfirvöld hafa brugðist íbúum algjörlega Húsnæðispakki 2 kynntur og ófremdarástand hjá Herjólfi Boða allt að 1.400 íbúðir á lóðum ríkisins og í húsum þess „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Bein útsending: Kynna húsnæðispakka 2 Grunar sterklega að hinn látni sé ferðamaðurinn sem leitað var að Krefjast aðgerða: Nemendurnir þurfi að fara um einn hættulegasta veg landsins Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Bein útsending: Húsnæðismál í aðdraganda kosninga Sumarbúðir fatlaðra barna í húsi sem sé úr sér gengið Vongóður um að fundur með Apple skili árangri Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Sjá meira