"Atorka, ráðdeild, framsýni og þollyndi" 17. júní 2011 12:20 Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra við Austurvöll í dag. Þarna má einnig sjá Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands, og séra Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands.
Forsætisráðherra sagði íslenskt samfélag hafa styrkst að flestu leyti frá stofnun lýðveldisins og það væri fyrirmynd annarra þjóða á fjölmörgum sviðum, í hátíðarræðu sinni á Austurvelli í morgun. „Atorka, ráðdeild, framsýni og þollyndi voru orðin sem Jón Sigurðsson valdi til hvatningar íslenskri þjóð á öndverðri nítjándu öld. Þessi hvatningarorð eiga ekki síður erindi við okkur í dag og við skulum heiðra minningu þessa baráttumanns með því að hafa þau að leiðarljósi," sagði Jóhanna. Hún sagði Íslendinga nú hafa tækifæri í kjölfar efnahagsáfallsins til þess að byggja upp réttlátara þjóðfélag, þar sem virðing fyrir öllum hópum og stéttum er í öndvegi, þar sem öllum eru sköpuð jöfn tækifæri til þess að láta til sín taka á mismunandi sviðum allt eftir kostum, eiginleikum og hugðarefnum hvers og eins.Þetta áhugasama fólk fylgdist með ræðuhöldunumHún stappaði Íslendinga í stálinu og hvatti þá til að líta bjartsýnir til framtíðar. Hún rifjaði upp að Jón Sigurðsson var áhugasamur um nýja stjórnarskrá. „Hann sat stjórnlagaþing Dana veturinn 1848-1849 þar sem danska stjórnarskráin var samin, en hún var talin ein sú framsæknasta í Evrópu á þeim tíma. Og sem þjóðkjörinn fulltrúi sat Jón þjóðfundinn fræga í Lærða-skólanum 1851 þar sem til stóð að semja fyrstu stjórnarskrána fyrir Ísland. Það var almennt viðurkennt við lýðveldisstofnun að því verkefni að móta varanlega stjórnskipan væri ólokið. Það er í raun merkilegt að nú fyrst, 160 árum eftir að þjóðfundinum var slitið, skuli hilla undir fyrstu alíslensku stjórnarskrána á vettvangi Stjórnlagaráðs. Fyrst nú hafa handhafar valdsins stigið það skref að fela óháðum fulltrúum þjóðarinnar að móta nýjar leikreglur fyrir íslenskt samfélag, án afskipta stjórnmálaflokka, framkvæmdarvalds eða löggjafarvalds." Ræða Jóhönnu í heild sinni.
Mest lesið Kölluð út á efsta forgangi þegar tveir féllu útbyrðis Innlent Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Innlent Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi Innlent Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Innlent Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ Innlent Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Innlent Hnífstunga í heimahúsi í Árbæ Innlent Fleiri fréttir Kölluð út á efsta forgangi þegar tveir féllu útbyrðis Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Boða fjölgun flugferða á sama tíma og bátsferðir voru felldar niður Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Hnífstunga í heimahúsi í Árbæ Kvöddu þjóðargersemi með sögum og söng Fróaði sér úti og var gripinn með teiknað barnaníðsefni Eldgos enn líklegasta sviðsmyndin Meirihluti oddvita í glænýju hlutverki Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Lögreglan á Austurlandi kom að handtöku fimmtíu Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ „Botninum hefur verið náð“ Segja borgaryfirvöld hafa brugðist íbúum algjörlega Húsnæðispakki 2 kynntur og ófremdarástand hjá Herjólfi Boða allt að 1.400 íbúðir á lóðum ríkisins og í húsum þess „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Bein útsending: Kynna húsnæðispakka 2 Grunar sterklega að hinn látni sé ferðamaðurinn sem leitað var að Krefjast aðgerða: Nemendurnir þurfi að fara um einn hættulegasta veg landsins Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Bein útsending: Húsnæðismál í aðdraganda kosninga Sumarbúðir fatlaðra barna í húsi sem sé úr sér gengið Vongóður um að fundur með Apple skili árangri Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Sjá meira