Afdrif ofbeldismannsins býsna endaslepp 18. júní 2011 18:57
Það skyti skökku við ef ofbeldismenn fengju hraðari afgreiðslu á húsnæðisvandræðum sínum en brotaþolar, segir framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins. Hún telur að lög sem leyfi að ofbeldismenn séu fjarlægðir af heimilum sínum hefðu gagnast betur ef þeir fengju strax meðferð við sinni ofbeldishneigð. Austurríska leiðin var lögleidd á Alþingi nú í júní, sem þýðir að ef rökstuddur grunur er um ofbeldi á heimili verður hægt að fjarlægja ofbeldismanninn af heimili hans í allt að fjórar vikur í senn. Í fréttum RÚV í gærkvöldi kom fram að félagsþjónustu sveitarfélaga verði skylt að útvega ofbeldismanninum húsaskjól hafi hann ekki í önnur hús að venda. Raunar er ekkert slíkt ákvæði í lögunum sjálfum, hins vegar er lögreglu skylt að tilkynna félagsþjónustunni þegar hún fjarlægir ofbeldismann af heimili sínu og það er lögbundið hlutverk félagsþjónustunnar að hýsa þá sem eiga engan samastað. Þetta er því óbein afleiðing hinna nýju laga. Sigþrúður Guðmundsdóttir, framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins, hefur fagnað lögleiðingu austurrísku leiðarinnar en furðar sig á tilkynningaskyldunni, konur sem leiti í Kvennaathvarfið þurfi sjálfar að leita aðstoðar félagsþjónustu þurfi þær á henni að halda. „Nú sjáum við konur bíða eftir félagslegu húsnæði í vikur og jafnvel mánuðum saman. Mikið neyðarúrræði sem það er og mér myndi nú finnst það skjóta skökku við ef að ofbeldismenn fengu hraðari fyrirgreiðslu heldur en brotaþolar," segir Sigþrúður. Sigþrúður segir afdrif ofbeldismannsins í lögunum býsna endaslepp og hefði viljað sjá að hann kæmist í meðferð. Hún segir að lögin hefðu gagnast betur ef ofbeldismannsins biði einhver úrræði og hann fengi strax meðferð við sinni ofbeldishneigð.
Mest lesið Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Innlent „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Innlent Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Innlent Þurfti að lenda flugvél eftir að kennarinn stökk út og hrapaði til bana Erlent Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Innlent „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Innlent Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Innlent Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Innlent Fleiri fréttir Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Skemmdarvargarnir enn ófundnir Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Ætla aftur að mála regnbogafánann Sjá meira