Markar stefnu til næstu ára 21. maí 2011 15:22 Á annað hundrað fulltrúar af öllu landinu sóttu aðalfundinn, sem haldinn var í Stapanum í Reykjanesbæ, í dag.
Formaður Rauða kross Íslands segir Rauða krossinum trúað fyrir mikilvægu hlutverki í íslensku samfélagi og því þurfi að efla starf félagsins. Á aðalfundi Rauða krossins í dag var samþykkt ný stefna til grundvallar starfsemi félagsins til ársins 2020. Þá var Ragna Árnadóttir, fyrrverandi dómsmálaráðherra, kjörin nýr varamaður í stjórn félagsins. Stefnumörkunin er unnin í samræmi við sameiginlega stefnu 186 landsfélaga Rauða krossins og Rauða hálfmánans sem samþykkt var á aðalfundi Alþjóðasambands Rauða krossins og Rauða hálfmánans sem haldinn var í Naíróbí í nóvember 2009, að því er fram kemur í tilkynningu. Alþjóðahreyfing Rauða krossins og Rauða hálfmánans setur sér jafnan sameiginlega stefnu á 10 ára fresti sem starfað er eftir í 186 löndum. Þetta leggur grunninn að því samhæfða starfi sem unnið er um allan heim í nafni Rauða krossins og Rauða hálfmánans og byggt er á grundvallarsjónarmiðum Rauða krossins um mannúð, óhlutdrægni, hlutleysi, sjálfstæði, sjálfboðna þjónustu, einingu og alheimshreyfingu. Anna Stefánsdóttir formaður Rauða kross Íslands, sagði í ræðu á aðalfundinum að efla þyrfti starf Rauða krossins á þeim erfiðu tímum sem landsmenn standi nú frammi fyrir og aðlaga það að síbreytilegum aðstæðum í þjóðfélaginu. „Þetta verðum við að gera á sama tíma og tekjur okkar fara minnkandi. Nú sem aldrei fyrr er nauðsynlegt að við einbeitum okkar að réttum verkefnum á réttum tíma og á réttum stað," sagði Anna.Fjölmennur aðalfundur Yfir 200 sjálfboðaliðar um allt land komu að mótun nýrrar stefnu Rauða kross Íslands og miðluðu þannig af þekkingu sinni og reynslu af störfum fyrir félagið. Áhersluverkefni Rauða krossins á næstu tíu árin eru að sinna neyðaraðstoð vegna áfalla og hamfara, að sýna mannúð og veita félagslegt öryggi, og sjá til þess að Rauði kross Íslands sé öflugt og vel starfandi Rauða kross félag. Til þess að ná þeim markmiðum þarf að halda áfram að þjálfa og mennta þá 3500 sjálfboðaliða sem starfa í verkefnum félagsins, sinna forvörnum til að draga úr skaða af völdum hamfara jafnt innanlands sem utan, og veita berskjölduðum þá aðstoð sem brýnust er í samfélaginu hverju sinni. Á annað hundrað fulltrúar af öllu landinu sóttu aðalfundinn, sem haldinn var í Stapanum í Reykjanesbæ.
Mest lesið „Fólk er bara slegið“ Innlent „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Innlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Innlent Blása á gagnrýni og opna dagatalið Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu Innlent Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Innlent Bannar innflutning á kanadískum vörum Erlent Fleiri fréttir „Við fyrirgefum ráðherra þessa yfirsjón“ Fleiri en einn yfirheyrður en enginn í haldi Segir afnám vaxtabóta bitna á tekjulágum heimilum Blása á gagnrýni og opna dagatalið „Fólk er bara slegið“ Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Breytingar á innanlandsflugi vegna bilunar Langflestir upplifðu sólmyrkvann Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Kristrún flytur stefnuræðuna „Ég er hræddur við þessa menn“ Ekkert heitt vatn á Suðurnesjum í dag Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Vanti ekki fjármagn eða hjálpargögn heldur þrýsting á Ísrael Sex gistu í fangageymslu í nótt Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi „Það kostar peninga að afla peninga“ Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Íkveikja í miðborginni Rukka meira fyrir aksturinn og sérstaklega fyrir veginn Þjóðin eigi náttúrupassa skilið „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Ávarp Höllu: „Slíkur missir snertir okkur öll“ „Maður á ekki að fara í felur með það sem maður er að gera“ Ætlaður hnífur sé tannbursti sem hafi róandi áhrif Sjá meira