Krefjast þess að málið verði látið niður falla 2. maí 2011 16:23
Ísland hafnar því að brot gegn innistæðutryggingatilskipun Evrópusambandsins hafi átt sér stað og krefst þess að mál Eftirlitsstofnunar EFTA, ESA verði látið niður falla. Þetta er á meðal þess sem fram kemur í bréfi Íslands til stofnunarinnar þar sem málstaður Íslands í Icesave málinu er settur fram. en sendiherra Íslands í Brussel afhenti bréf efnahags- og viðskiptaráðuneytisins þess efnis á skrifstofu stofnunarinnar í dag. Árni Páll Árnason efnahags- og viðskiptaráðherra kynnti afstöðu Íslands á fundi í dag. Í bréfinu kemur fram að allar horfur séu á því að þrotabú Landsbankans muni standa undir þorra krafna vegna innistæðna og að útgreiðslur úr búinu hefjist á næstu misserum. Þó er bent á að einhliða aðgerðir Breta og Hollendinga hafi tafið fyrir. „Þar sem Ísland hafi ekki brotið gegn samningsskuldbindingum með neinum hætti telji stjórnvöld að ESA geti lokið málinu, án frekari aðgerða," segir í tilkynningu frá ráðuneytinu. „Efnahags- og viðskiptaráðuneytið þakkar þeim sérfræðingum og félagasamtökum sem lögðu til gögn og liðsinntu við undirbúning málsins. Þóra Margrét Hjaltested og Kristján Andri Stefánsson önnuðust verkstjórn fyrir hönd efnahags- og viðskiptaráðuneytisins og utanríkisráðuneytisins og nutu vinnuframlags m.a. Jóhannesar Karls Sveinssonar, Peters Dyrberg, Dóru Guðmundsdóttur, Eiríks S. Svavarssonar, Reimars Péturssonar og Stefáns Más Stefánssonar," segir einnig. Hér má sjá bréfið í heild sinni, á ensku.
Mest lesið „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Innlent „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ Innlent Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Innlent Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Innlent Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Innlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Herinn sé reiðubúinn að tortíma Íran verði Trump ráðinn af dögum Erlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður Fleiri fréttir Gagnrýna könnun sem sýni fram á stuðning við dánaraðstoð Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Sjá meira