Skoða áhrif niðurskurðar á starfsemi kirkjunnar 4. maí 2011 11:22 Biskup sendi innanríkisráðuneytinu formlegt erindi þar sem hann lýsti yfir þungum áhyggjum af fjárhagsstöðu kirkjunnar. Ögmundur Jónasson ætlar nú að skipa starfshóp til að meta stöðuna Mynd úr safni: Stefán
Setja á starfshóp kirkjunnar og innanríkisráðuneytisins á laggirnar sem meta á hvaða áhrif niðurskurður hefur haft á starfsemi kirkjunnar og hverjar afleiðingarnar yrðu ef haldið verður áfram á þeirri braut. Þetta kom fram í ávarpi innanríkisráðherra við setningu prestastefnu í gærkvöldi. Ögmundur Jónasson sagði í ávarpi sínu að því miður sæi ekki enn fram úr þeim þrengingum sem við væri að stríða og enn væri boðað aðhald á komandi ári. Með því að skipa starfshóp til að meta þessi áhrif væri hann að bregðast við ákalli biskups sem lýst hafi þungum áhyggjum af fjárhagsstöðunni í formlegu erindi til ráðuneytisins. Ráðherra kvaðst vera meðvitaður um ábyrgð sína sem hluti framkvæmda- og fjárveitingavalds. ,,Mitt hlutverk er meðal annars að halda til haga hagsmunum skattreiðenda og ríkissjóðs en við sem höfum þetta verkefni með höndum þurfum jafnframt að vera meðvituð um afleiðingar gerða okkar," sagði ráðherra. Þá sagði ráðherra kirkjuna og stjórnmálin eiga margt sameiginlegt og kvað hann stjórnmálalífið ekki síður standa á krossgötum en kirkjan teldi sig gera. Margt benti til þess að stofnanakerfið, stjórnmálaflokkarnir myndu meira og minna riðlast á nýrri lýðræðisöld. Hann sagði þá samstöðu sem fólk vildi sjá snúa að markmiðum og boðskap en ekki stofnunum, fólk myndi spyrja hver eru markmiðin og boðskapurinn en ekki í hvaða flokki ertu eða hvaða stofnun heyrir þú til. Það verði siðbótarkrafan í íslensku stjórnmálalífi á nýrri öld og í samfélaginu almennt og muni hún án efa einnig taka til kirkjunnar sem stofnunar. Ávarp ráðherra má lesa í heild sinni með því að smella hér.
Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Fleiri fréttir „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft „Við erum að laga Ísland“ Útgjöldin mikil en niðurstaðan rýr Sjá meira